Samfélagsmiðlar

„Galið að Icelandair niðurgreiði ferðir einnar ferðaskrifstofu“

Forstjóri Úrval-Útsýn telur ljóst vera afhverju forsvarsfólk systurfélaganna Icelandair og Vita finnur fyrir aukinni eftirspurn eftir Spánarferðum en aðrir ekki.

Við sundlaugarbakka á Tenerife.

Sautján áætlunarferðum til Tenerife hefur verið bætt við flugáætlun Icelandair næstu mánuði líkt og Túristi greindi frá í gær. Vita, sem er í eigu Icelandair Group, hefur þessu til viðbótar fjölgað vikulegum brottförum til Alicante nú í ágúst úr tveimur í þrjár.

„Bókanir hafa verið sterkar bæði hvað varðar beina sölu flugmiða og í pakkaferðum og það hefur kallað á meira framboð,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, spurður um skýringu á þessari viðbót.

Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrval-Útsýn, segir ekki ætlunina að bæta við ferðum til Spánar þar á bæ. Hún telur það líka víst vera að aukin eftirspurn eftir Spánarflugi Icelandair og Vita skrifist á notkun vildarpunkta flugfélagsins.

Máli sínu til stuðnings bendir hún á að nú sé hægt að greiða margfalt meira af verði pakkaferða Vita með vildarpunktum Icelandair en áður. Hámarkið hafi lengstum verið við tíu þúsund krónur en núna er það sexfalt hærra.

„Það er galið að Icelandair niðurgreiði pakkaferðir einnar ferðaskrifstofu með þessum hætti. Vissulega er Vita í eigu Icelandair Group en þetta skekkir samkeppnisstöðuna á markaðnum verulega eins og sést í þeirri staðreynd að eingöngu Icelandair og Vita fjölga ferðum til Tenerife og Alicante. Ég þekki ekki til neins annars flugfélags sem býður viðskiptavinum að nota vildapunktana sína til kaupa á pakkaferð hjá ferðaskrifstofu,“ útskýrir Þórunn.

Viðbótar brottfarir til Tenerife eru heldur ekki á teikniborðinu hjá Play að sögn Birgis Jónssonar, forstjóra flugfélagsins. Í því sambandi bendir hann á að leigugreiðslur Play á flugvélum miðist aðeins við flogna tíma. Þar með sé ekki mikil pressa að bæta við flugum nema eftirspurnin kalli eftir því.

Birgir bætir því við að Las Palmas á Kanarí hafi verið bætt við vetraráætlun Play nýverið og nú sé lögð áhersla á að selja sætin þangað áður en lengra er haldið.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …