Samfélagsmiðlar

Með helmingi lægri fargjöld en fella samt niður ferðir

Í dag dugar ekki að bjóða lægstu fargjöldin til að fylla flugvélarnar. Alla vega virðist það vera staðan hjá Play.

Þriðja þotan í flota Play bættist við nú í byrjun mánaðar.

Stjórnendur Play hafa dregið úr áformum um flug til Parísar, Berlínar og London í næsta mánuði. Í flugi til allra þessara borga er Play í samkeppni við önnur flugfélög.

Það á reyndar við um allar aðra áfangastaði í leiðakerfi Play. Félagið hefur nefnilega ekki sótt á inn á markaði sem enginn annar sinnir ef Salzburg er frátalin. Icelandair bætti svo þeirri borg við vetraráætlun sína í vikunni

En sem fyrr segir þá stendur fyrir dyrum niðurskurður á flugi Play til höfuðborga Frakklands, Þýskalands og Bretlands.

Engu að síður er staðan sú að farþegar á leið til þessara þriggja borga, næstu tvær vikur, fá í öllum tilvikum ódýrustu miðana hjá Play. Og verðmunurinn er umtalsverður.

Þannig er meðalfargjaldið hjá British Airways frá Íslandi til London fimmfalt hærra en hjá Play. Munurinn á Icelandair og Play er tvöfaldur eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.

Skýringarnar á því að Play selur ekki nægjanlega mörg sæti, þrátt fyrir að vera með ódýrustu fargjöldin, geta verið margar. Hin flugfélögin eiga sér til að mynda langa sögu á meðan Play er óþekkt stærð í útlöndum. Einnig eru ferðir Icelandair mun tíðari og farþega félagsins hafa því úr fleiri ferðum að velja.

Í þessari könnun Túrista var aðeins horft til fargjalda á leiðinni frá Keflavíkurflugvelli dagana 23. ágúst til 5. september. Heimferðin var ekki tekin með í reikninginn en í öllum tilvikum er um að ræða farmiða án innritaðs farangurs.

Túristi kannaði einnig fargjöldin til Kaupmannahafnar og niðurstaðan var sú sama, Play er um helmingi ódýrari en Icelandair en þó með mun færri ferðir.

Meðalverð á ódýrustu farmiðunum frá Keflavíkurflugvelli dagana 23.ágúst til 5. september.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …