Samfélagsmiðlar

Ekki í kortunum að bæta við borgum í Kanada

Boeing 757 þota Icelandair á flugvellinum í Vancouver.

Fullbólusettir ferðamenn fá nú ferðast til Kanada en landamæri landsins hafa í raun verið lokuð frá því í mars í fyrra þegar kórónuveirufaraldurinn hófst. Af þeim sökum hafa ferðir Icelandair til Kanada legið niðri síðustu misseri en félagið tók þó upp þráðinn í flugi sínu til Toronto í byrjun ágúst.

Boeing MAX þotur voru nýttar í fyrstu ferðirnar en síðustu daga hefur félagið sent breiðþotur til Toronto enda batnaði bókunarstaðan í ferðirnar til þessarar fjölmennustu borgar Kanada við tíðindin af opnun landamæranna líkt og fram kom hér á síðunni fyrr í vikunni.

Það er þó ekki á dagskrá hjá Icelandair að bæta við áfangastöðum í Kanada en þegar mest lét flaug félagið til fimm kanadískra borga.

„Við fylgjumst vel með eftirspurninni og erum alltaf að vega og meta áfangastaði. Á þessum tímapunkti erum við ekki með plön um að bæta Vancouver við vetraráætlun okkar,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í svari til Túrista. Félagið horfir ekki heldur til þess að setja í gang ferðir til Montreal og Edmonton.

Til Montreal hefur Icelandair aldrei flogið yfir vetrarmánuðina en Wow Air náði hins vegar að fljúga þangað nokkra vetur.

Líkt og Túristi hefur áður fjallað um þá gæti farið svo að fjögur flugfélög fljúgi milli Íslands og Toronto næsta sumar. Því Air Canada hefur þegar sett í sölu sínar ferðir til Íslands frá borginni og eins var Toronto hluti af því leiðakerfi sem stofnendur Play kynntu á sínum tíma. Fjórða félagið gæti svo orðið Westjet en þetta kanadíska lágfargjaldaflugfélag hefur síðustu tvö ár fengið úthlutaða lendingartíma á Keflavíkurflugvelli sem hafa þó ekki verið nýttir.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …