Það hefur dregið úr bjartsýni forstjóra bandarískra flugfélaga síðustu daga og afkomuspár verið lækkaðar í takt við neikvæða þróun í eftirspurn eftir flugmiðum. Af þeim sökum lækkaði gengi hlutabréfa í bandarísku flugfélögunum þónokkuð í vikunni og það sama gerðist í Evrópu.
Fréttir af yfirtöktutilboði Wizz Air í easyJet höfðu höfðu líka neikvæð áhrif á fjárfesta. Líka þá sem taka þátt í viðskiptum í norrænu kauphöllunum því þar lækkaði gengi fjögurra flugfélaga á bilinu þrjú til fjögur prósent. Þar átti til að mynda við um Play en gengi Icelandair hækkaði aftur á móti eins og sjá má .