Samfélagsmiðlar

Erlendu flugfélögin fækka sætunum til Íslands um tugi þúsunda næstu vikur

Þotur erlendra flugfélaga munu ekki fljúga eins títt til Íslands næstu vikur og þær hafa gert að undanförnu.

Þegar sumarvertíðinni lýkur þá dregur úr flugi erlendra flugfélaga til Íslands. Þessi árstíðarsveifla verður þó ennþá meiri að þessu sinni miðað við þær áætlanir sem núna eru uppi.

Þær gera nefnilega ráð fyrir um þriðjungi færri ferðum til Íslands á vegum erlendra flugfélaga nú í október í samanburði við október 2019 samkvæmt talningum Túrista. Það þýðir að ferðirnar fara úr átján ferðum í dag niður í tólf. Framboð á flugi til Íslands nú í október dregst þar með saman um 32 til 35 þúsund sæti.

Ef niðursveiflan í október hefði verið í takt við það sem var nú í september þá hefði samdrátturinn verið helmingi minni. Árstíðarsveiflan er því töluvert meiri en var fyrir heimsfaraldur.

Hver staðan verður í nóvember og desember er ennþá of snemmt að segja til. Þannig hafa athuganir Túrista sýnt að flugfélög eru ennþá að gera breytingar á áætlunum sínum. Síðustu daga hefur SAS til að mynda fellt niður allt flug til Íslands frá Ósló fyrri helminginn í nóvember.

Það er líka áberandi að í dag eru sum flugfélög með í sölu mun fleiri ferðir til Íslands í desember en í nóvember. Í sumum tilvikum er munurinn allt að helmingur. Það er óvenjulega mikill munur og um leið vísbending um að áætlanir fyrir desember verði fljótlega skornar niður.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …