Til að meta áhrif heimsfaraldursins á fluggeirann og ferðaþjónustuna þá er til að mynda hægt að horfa til stöðunnar í hittifyrra og eins meta þróunin á milli síðustu mánaða. Af helstu flugvöllum Norðurlanda þá kemur Keflavíkurflugvöllur best út úr fyrri samanburðinum en langverst út úr þeim seinni.
Því samkvæmt farþegatölum síðasta mánaðar þá fækkaði farþegum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um fimmtung frá því í ágúst. Þróunin var aftur á móti jákvæð í Kaupmannahöfn, Ósló og Helsinki. Á Arlanda flugvelli í Stokkhólmi fækkaði hins vegar farþegunum líkt og hér á landi en hlutfallslega mun minna.
Þrátt fyrir þessa þróun í síðasta mánuði þá er Keflavíkurflugvöllur áfram sá norræni alþjóðaflugvöllur sem hefur náð mestum bata þegar horft er til ársins 2019. Í síðasta mánuði var samdrátturinn þar á bæ akkúrat helmingur miðað við september 2019. Það er ögn minna en á flugvöllunum í Kaupmannahöfn og Ósló. Forskot Keflavíkurflugvallar hefur þó skiljanlega minnkað frá því í sumar. Sem fyrr er lengst í land í Helsinki enda snýr stór hluti af umsvifunum að flugferðum til Asíu.