Samfélagsmiðlar

Arion banki selur loks í Danmörku

Danska ferðaskrifstofan Bravo Tours var stofnuð árið 1998.

Allt frá því að Arion banki tók yfir ferðaskrifstofuveldi Andra Más Ingólfssonar þá hefur það verið yfirlýst markmið að selja fyrirtækin. Nú rúmum tveimur árum síðar er bankinn ekki lengur með rekstur erlendra ferðaskrifstofa á sínum snærum.

Sala á sextíu prósent hlut Arion banka í dönsku ferðaskrifstofunni Bravo Tours hefur nefnilega gengið í gegn samkvæmt upplýsingum frá bankanum. Kaupendurnir eru þeir dönsku fjárfestar sem hafa síðastliðið ár farið með fjörutíu prósent hlut í ferðaskrifstofunni á móti íslenska bankanum. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Bravo Tours var stærsta ferðaskrifstofan innan Primera samsteypunnar Andri Már stofnaði og rak fram á sumarið 2019. Í raun var þó um að ræða nýtt fyrirtæki því það upprunalega fór í þrot í fyrra. Arion og meðeigendur bankans keyptu vörumerki Bravo tours og fleiri eignir út úr þrotabúinu líkt og Túristi hefur áður fjallað um.

Eftir söluna á Bravo Tours í Danmörku þá eru Heimsferðir eina ferðaskrifstofan sem Arion banka heldur eftir af þeim sem tilheyrði Primera samsteypunni á sínum tíma. Skrifað var undir kaupsamning á þeim rekstri í lok síðasta árs og mun bankinn fá 27 prósent eignahlut í sameinuðu félagi Heimsferða og Ferðaskrifstofu Íslands. Þessi viðskipti eru þó háð samþykki Samkeppniseftirlitsins en þar hefur málið verið til skoðunar síðastliðið ár.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …