Samfélagsmiðlar

Eyða meiru á öllum sviðum ferðaþjónustu nema einu

Ferðamenn við Námaskarð.

Þeir erlendu ferðamenn sem dvöldu á Íslandi í október eyddu að jafnaði um 37 þúsund krónum meira en sá hópur sem var hér í október 2019. Þessi viðbót skilar sér til hótela, bílaleiga, veitingahúsa og verslana.

Á hinn bóginn hefur kortavelta á hvern ferðamann í flokknum „Ýmis ferðaþjónusta“ dregist saman. Í þennan flokk fara m.a. kortagreiðslur til ferðaskrifstofa, ferðaskipuleggjenda og markaðssetningarfyrirtækja samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.

Í október lækkaði meðalvelta á hvern ferðamann í þessum flokki um fjögur þúsund krónur. Fór úr 17 þúsund kr. í október 2019 niður í 13 þúsund kr. Hlutfallslega nemur lækkunin 23 prósentum eins og sjá má hér fyrir neðan.

Þróunin var líka neikvæð í september þegar meðalútgjöldin í þessum flokki fóru niður um 16 prósent en í ágúst var niðursveiflan helmingi minni eða 8 prósent. Í júní og júlí jókst hins vegar erlenda kortalvelta í þessum flokki eins og öðrum.

Þetta sýnir samanburður Túrista sem byggir á gögnum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar og talningu Ferðamálastofu erlendum brottfararfarþegum á Keflavíkurflugvelli. Eins og gefur að skilja eru skekkjur í þessum tölum eins og öðrum sambærilegum gögnum.

Þegar horft er til tímabilsins júlí til október þá sést að „Ýmis ferðaþjónustu“ fær núna minna hlutfall af erlendu kortaveltunni en áður.

Skýringar á þessum breytingum gætu, samkvæmt viðmælendum Túrista, legið í mörgum þáttum. Til að mynda fækkun erlendra skemmtiferðaskipa í ágúst og september, fjölmennu rafíþróttamóti í Reykjavík í haust og umfangsmikilli söluherferð Icelandair á tilboðssíðunni Travelzoo í Bandaríkjunum. Þar bauðst bandarískum ferðamönnum meðal annars að bóka afþreytingu hér á landi með flugmiðunum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …