Samfélagsmiðlar

Play í fyrsta sinn með fleiri farþega en Icelandair félögin

Nærri átta af hverjum tíu sem flýgur héðan til Alicante og Tenerife situr í þotum Icelandair og Play.

Frá Alicante.

Það búa hátt í þrjár milljónir manna í innan við klukkutíma akstursfjarlægð frá flugvellinum í Alicante og þegar Ameríkuflug Play hefst næsta sumar geta íbúa Alicante og nágrennis keypt flugmiða með íslenska flugfélaginu til Bandaríkjanna með millilendingu á Keflavíkurflugvelli.

Icelandair býður ekki upp á sömu þjónustu því ferðir félagsins til Alicante þangað takmarkast við leiguflug fyrir systurfélagið Vita. Spánverjarnir á leið til Íslands eða N-Ameríku finna því ekki þessar ferðir í bókunarvél Icelandair.

Þessa dagana má þó gera ráð fyrir að það séu nær eingöngu Íslendingar á leið til Alicante og nágrennis sem nýta sér ferðir félaganna Play og Icelandair til Spánar. Og nú í október gerðist það í fyrsta sinn að Play flutti fleiri farþega til spænsku borgarinnar en Icelandair.

Farþegar Play voru 2.919 en Vita seldi 2.801 sæti í leiguflug sitt með Icelandair samkvæmt tölum frá spænskum flugmálayfirvöldum. Það skal þó tekið fram að ferðir Play voru 18 á meðan Vita og Icelandair fóru 14 ferðir.

Þegar kemur að flugi til Tenerife þá er Icelandair mun stórtækara en Play, bæði í ferðum talið og farþegum. Ferðir Icelandair, til og frá eyjunni, voru 44 talsins á meðan Play fór 18 ferðir samkvæmt talningum Túrista. Farþegahópur Icelandair var ríflega tvöfalt fjölmennari og taldi nærri sjö þúsund farþega en hafa ber í huga að hver einstaklingur er talinn bæði þegar hann kemur til flugvallar og eins þegar hann flýgur þaðan.

Icelandair og Play eru þó ekki ein um að halda úti reglulegu flugi til Tenerife og Alicante því það gera Heimsferðir og Ferðaskrifstofa Íslands líka en Úrval-Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir heyra undir þá síðarnefndu. Hlutdeild ferðaskrifstofanna á markaðnum er hinsvegar rétt um fimmtungur því flugfélögin tvö fluttu um átta af hverjum tíu farþegum frá Íslandi til Alicante og Tenerife í október.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …