Samfélagsmiðlar

Stefna á daglegar ferðir milli Íslands og Amsterdam í samkeppni við íslensku félögin

Flugumferðin milli Íslands og Hollands er aukast og gæti þyngst til muna á næstu árum.

Farþegar á Schiphol í Amsterdam.

Icelandair hefur um langt árabil boðið upp á tíðar ferðir til Amsterdam og í næstu viku er jómfrúarferð Play til höfuðborgar Hollands á dagskrá. Þar í borg komst Wow Air líka á gott skrið og flaug þangað tvisvar á dag líkt og Icelandair.

Þrátt fyrir þessa miklu umferð frá Keflavíkurflugvelli þá hefur KLM, stærsta flugfélag Hollands, látið Íslandsflug eiga sig.

Þegar Wow Air féll í mars 2019 þá setti dótturfélag KLM, lággjaldaflugfélagið Transavia, hins vegar í sölu flug til Íslands. Áður hafði félagið aðeins flogið hingað frá Orly flugvelli við París.

Næsta sumar munu þotur Transavia fljúga daglega til Keflavíkurflugvallar frá frönsku höfuðborginni en svo tíðar hafa brottfarirnar ekki áður verið. Ferðirnar frá Amsterdam verða aftur á móti aðeins fjórar í viku.

Það gæti þó breyst fyrir sumarvertíðina 2023 segir talsmaður félagsins í svari við fyrirspurn Túrista. Þar segir að markmið Transavia til lengri tíma sé að fljúga daglega til Íslands. Það fari þó eftir árangri hvort það gerist þarnæsta sumar eða síðar.

Skýringin á því að KLM hefur ekki hafið flug til Íslands liggur líklegast í tveimur þáttum.

Í fyrsta lagi hefur félagið átt í áratugalöng samstarfi við Icelandair sem skilar hollenska félaginu ófáum farþegum frá Íslandi sem eru á leið í tengiflug frá Schipol. Í öðru lagi þá hefur stór hluti þeirra sem hafa nýtt sér ferðir Icelandair frá Amsterdam í raun verið á leið til Norður-Ameríku en ekki Íslands. Þessi hópur getur líka valið úr fjölda beinna flugferða yfir Atlantshafið með KLM en hluti hans velur frekar að fljúga með Icelandair og millilenda á leiðinni. Við þá ákvörðun vega lægri fargjalda vafalítið þungt.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …