Samfélagsmiðlar

Fjölga ferðum milli Íslands og Frakklands

Þotur Transavia munu ekki aðeins fljúga til Keflavíkurflugvallar frá París og Amsterdam næsta sumar.

Ein umsvifamesta flugfélagasamsteypa Evrópu er Air France-KLM Group sem kennd er við stærstu flugfélög Frakklands og Hollands. Stjórnendur félaganna tveggja hafa lengi kosið að halda sig fjarri íslenska markaðnum en aftur á móti hefur lágfargjaldaflugfélagið Transavia, sem eru í eigu frönsk-hollensku samsteypunnar, verið að bæta í Íslandsflugið jafnt og þétt.

Næsta sumar eru til að mynda á dagskrá daglegar ferðir hingað frá Orly flugvelli við París og tíðar ferðir frá Schiphol í Amsterdam.

Nú hefur Transavia jafnframt sett í sölu vikulegar brottfarir frá Nantes í Frakklandi til Keflavíkurflugvallar.

Félagið hélt út flugi á þessari leið í júlí og ágúst árið 2020 en næsta sumar er ætlunin að hefja vertíðina strax í lok maí og halda henni úti fram í lok október.

Samtals verða ferðirnar hingað frá Nantes tuttugu og þrjár talsins og því sæti fyrir nærri 4.400 farþega. En sem fyrr segir verður aðeins flogið einu sinni í viku og því má gera ráð fyrir að dvalartími ferðamannanna frá Nantes verði langur.

Það má því gera ráð fyrir að Frakkarnir frá Nantes muni standa undir að lágmarki tuttugu þúsund gistinóttum hér á landi frá júní til október á næsta ári.

Til samanburðar voru gistinætur Frakka hér á landi á þessu sama tímabili í ár nærri 55 þúsund talsins.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …