Samfélagsmiðlar

Munurinn á áætlun Wow 2015 og Play 2022

Flugvöllurinn í Kaupmannahöfn. Þangað flugu þotur 10 sinnum í viku sumarið 2015. Play er aðeins með fjórar ferðir á sinni dagskrá.

Í vor ætlar Play að hefja flug til Bandaríkjanna en ekki liggur fyrir hvaða áfangastaðir verða fyrir valinu. Þeir verða þó ólíklega fleiri en þrír miðað við núverandi áætlun og sex þotur.

Wow Air var með jafn margar flugvélar sumarið 2015 en þá hófst áætlunarflug félagsins til Bandaríkjanna. Þetta var líka fyrra árið sem Wow Air skilaði hagnaði. Áætlanir Play fyrir næsta ár gera líka ráð fyrir því að reksturinn verði réttum megin við núllið.

Fyrstu sumarvertíð Wow Air vestanhafs þá flugu þotur félagsins eingöngu flogið til Baltimore og Boston enda fékk félagið ekki heppilega lendingartíma á flugvöllunum í nágrenni við New York. Það ætti þó að vera auðveldara fyrir Play að komast að á stórum flugvöllunum við heimsborgina nú þegar heimfaraldurinn hefur leikið fluggeirann grátt.

Þotur Wow Air flugu fimm sinnum í viku til Baltimore og alla daga nema laugardaga til Boston. Fastlega má gera ráð fyrir að ferðafjöldinn hjá Play verði ekki minni. Félagið er til að mynda ennþá með laus pláss fyrir daglegar ferðir til þriggja bandarískra borga í sumaráætlun næsta árs.

Þegar kemur að Evrópuflugi þá er nokkur munur á áætlun Wow sumarið 2015 og þeirri áætlun sem Play hefur stillt upp fyrir það næsta.

Í fyrsta lagi þá bauð Wow Air upp á mun tíðari ferðir en Play til helstu áfangastaða. Þannig flugu þotur Wow Air tíu ferðir í viku til Kaupmannahafnar en ennþá eru eingöngu fjórar ferðir í viku á dagskrá Play. Ferðir félagsins til Parísar, London og Berlínar eru jafn margar og því mun færri en Wow Air bauð uppá eins og sjá má á töflunni.

Það er hins vegar möguleiki að koma daglegu morgunflugi til þessara fjögurra borga í núverandi áætlun Play. Þannig er Play aðeins með í sölu 46 ferðir í viku frá Keflavíkurflugvelli næsta sumar en gæti farið upp í 80 ferðir ef flotinn verður nýttur til hins ítrasta. Til samanburðar flugu þotur Wow air 73 ferðir í viku sumarið 2015.

Þegar kemur að fjölda evrópskra áfangastaða þá voru þeir nítján í áætlun Wow sumarið 2015 eða einu fleiri en Play er nú með í sölu. En fastlega má búast við að Play opni fyrir bókanir á flugi til Amsterdam fljólega og þá verða borgirnar jafn margar og þær voru hjá forveranum. Þær eru þó ekki þær sömu eins og sjá má á samantektinni hér fyrir neðan.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …