„Á næsta ári verður áherslan á að fylgja eftir þessari miklu viðurkenningu sem Lonely Planet veitti okkur með því að velja Vestfirði Best in Travel 2022. Þannig munum við reyna að nýta viðurkenninguna til að koma okkur enn frekar á framfæri og til að vekja athygli fjárfesta á Vestfjörðum. Okkur vantar meiri fjárfestingu inn á svæðið,“ segir Díana Jóhannsdóttir hjá Áfangastaðastofu Vestfjarða spurð um áherslur næsta árs þar á bæ.
Díana segir að viðurkenning Lonely Planet hafi vakið mikla athygli á ársfjórðungnum og sérstaklega hjá ferðaskrifstofum. Eins hafi þetta orðið til þess að opna augu fjárfesta fyrir öllum þeim tækifærum sem vestfirsk ferðaþjónusta á inni að hennar mati.
„Það er síðan samvinnuverkefni Markaðsstofunnar, ferðaþjóna og sveitarfélaganna að breyta þessari athygli í bókanir og sölu og það er ákveðið langtímaverkefni,“ bætir Díana við.
Megin þemað í starfsemi Markaðsstofu Vestfjarða á næsta ári er hins vegar Vestfjarðaleiðin svokallaða. Ný 950 kílómetra ferðamannaleið um Vestfirði sem unnið er að í samstarfi við Dalabyggð. Þessu til viðbótar verður unnið að þróun og uppbyggingu í kringum hjólaferðamennsku á Vestfjörðum.
Aðspurð um áhrif heimsfaraldursins á starfsemina þá segir Díana að hann hafi í raun ekki breytt áherslunum heldur frekar haft áhirf á útfærslur á verkefnum.
„Þannig höfum við breytt forgangsröðun verkefna og til dæmis nýtt okkur tæknina mikið og verið með vinnustofur og webinare á netinu til að kynna t.d. Vestfjarðaleiðina.“
Markaðsstofur landshlutanna eru sex talsins og segir Díana að viðfangsefni skrifstofanna séu í grunninn keimlík en mismunandi aðstæður hafa áhrif á starfsemina.
„Þannig er meiri áhersla hjá okkur á uppbyggingu innviða og fjárfestingu heldur en á svæði þar sem ferðaþjónstunan er komin lengra,“ segir Díana að lokum.