Samfélagsmiðlar

Eldsneytisgjaldið helmingi lægra en síðast þegar olíuverðið var svona hátt

Suðurliðun á fargjaldi Icelandair til New York 3. mars og heim aftur þremur dögum síðar. Farið kostar 44.825 krónur og eldsneytisgjald flugfélagsins nemur í dag 40 prósent af upphæðinni.

Verð á olíu hefur hækkað hratt að undanförnu og hefur ekki verið hærra síðan árið 2014. Á þeim tíma var eldsneytisálagið hjá Icelandair tvöfalt hærra en það er í dag.

Þá nam álagið 16.400 krónum ef flogið var héðan til Bandaríkjanna og 9.200 ef ferðinni var heitið til annarra Evrópuríkja. Eldsneytisgjaldið í dag er 8.100 krónur ef flogið er vestur um haf en annars 4.600 kr. Gjaldið á heimleiðinni sveiflast í takt við gengi evru og dollara.

Spurð hvort hækkana sé að vænta á eldsneytisálaginu í ljósi stöðunnar á olíumarkaði þá bendir Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi flugfélagsins, á að gjaldið sé aðeins hluti af farmiðaverðinu.

„Fargjöldin sem eru í boði hverju sinni eru í stöðugri endurskoðun enda erum í harðri samkeppni á þeim mörkuðum sem við störfum á, eldsneytisgjaldið er einungis hluti þess,“ skrifar Ásdís í svari til Túrista.

Komu hækkuninni ekki út í verðlagið

Eldsneytisgjaldið er því ekki föst upphæð sem ávallt er bætt við fargjöldin en það hefur líka reynst stjórnendum Icelandair erfitt að koma kostnaðarhækkunum út í verðlagið. Árið 2018 var olíuverðið álíka hátt og það er í dag og þá sögðu stjórnendur flugfélagsins að þróun fargjalda væri ekki sjálfbær í ljósi kostnaðarhækkana.

Þegar árið 2018 var svo gert upp þá var niðurstaðan tap upp á nærri sjö milljarða króna. Þrátt fyrir að rekstur flugfélaga ú í heimi hafi almennt verið blómlegur það ár en samkeppnin við Wow Air og Norwegian lék Icelandair grátt.

Ef olíuverðið helst áfram mjög hátt og langt yfir það sem sérfræðingar Icelandair höfðu reiknað með í ár þá er spurning hvort sú þróun muni ekki á einhvern hátt koma fram í fargjöldum Icelandair og annarra flugfélaga. Annað hvort með hærra eldsneytisgjaldi eða öðrum hætti.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …