Nú í heimsfaraldrinum hafa tvö ný norsk lágfargjaldaflugfélög litið dagsins ljós. Annað þeirra er Flyr sem hóf áætlunarflug í lok júní sl. en hefur síðan þá félagið flogið hálftómum Boeing þotum. Það hefur því gengið verulega á þá níu milljarða króna (600 millj. norskar) sem söfnuðust í hlutafjárútboði félagsins í febrúar í fyrra.
Af þeim sökum var gefið út nýtt hlutafé upp á tæpa fjóra milljarða króna (250 millj. norskar) nú í ársbyrjun.
Útboðsgengið að var 1 norsk króna á hlut en til samanburðar var gengið fimm sinnum hærra í útboðinu í febrúar í fyrra. Síðan þá hefur það lækkað um sextíu af hundraði.
Þrátt fyrir taprekstur og lækkandi gengi þá var umframeftirspurn eftir nýjum hlutabréfum í Flyr. Fjárfestar skráðu sig nefnilega fyrir 43 prósentum fleiri hlutum en í boði voru samkvæmt tilkynningu frá norska flugfélaginu.
Það var reyndar búið að tryggja sölu á öllu nýja hlutafénu og það lá því fyrir að Flyr myndi afla þess fjár sem stjórnendur þess telja að dugi til rekstrarins fram á næsta ár í það minnsta. Ef það á að ganga eftir þarf svokallaður fjármagsbruni að minnka umtalsvert. Því samkvæmt útboðsgögnum Flyr þá streymdu að jafnaði 750 milljónir króna á mánuði út úr sjóðum félagsins á síðasta fjórðungi síðasta árs. Ef takturinn verður sambærilegur áfram þá dugar nýr sjóður Flyr aðeins fram á sumarið eins og bent er á í frétt norska viðskiptamiðilsins E24.
Í flota Flyr í dag eru fimm eldri Boeing 737 þotur og sú sjötta bætist við í byrjun næsta mánaðar. Auk þess hefur félagið leigt sex nýjar Boeing 737 Max þotur og stefnt er að því að taka þær fyrstu í notkun fyrir næstu sumarvertíð.
Til samanburðar þá er stefnt að því að sex þotur verði í flota Play næsta sumar en félagið hefur ennþá ekki tilkynnt um leigusamning á sjöttu flugvélinni.