Samfélagsmiðlar

Heldur enn í vonina um að Bretarnir komi

Aukinn stuðningur við veitingageirann var samþykktur á Alþingi í síðustu viku. Á sama tíma hefur ferðaþjónustan verið sett á guð og gaddinn að mati framkvæmdastjóra Snæland Grímsson. Hann segist þó reyna að halda í bjartsýnina.

Hallgrímur Lárusson, framkvæmdastjóri Snæland Grímsson. Fyrirtækið heldur utan um Íslandsreisur farþeganna sem hingað koma á vegum TUI í Bretlandi.

Um fjórði hver ferðamaður hér á landi yfir vetrarmánuðina er breskur. Þannig var þetta alla vega fyrir heimsfaraldur því þá komu hingað fleiri Bretar í febrúar en samanlagt yfir sumarmánuðina þrjá. 

Breski ferðarisinn Thomson/TUI hefur verið stórtækur í vetrarferðum til Íslands og flogið hingað allt að fimmtán þúsund farþegum á þessum tíma árs. Það er Snæland Grímsson sem hefur skipulagt Íslandsdvöl farþega bresku ferðaskrifstofunnar og að sögn Hallgríms Lárussonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, þá var útlitið í byrjun vetrar ágætt. 

„Við höldum alltaf að við séum að komast fyrir horn og þannig var stemningin í lok nóvember í fyrra. Þá var bókunarstaðan fyrir hátíðarnar góð og almennt reiknað með að áramótin yrðu í takt við eðlilegra árferði. Þegar ómíkrón fárið skall á í byrjun desember þá streymdu inn afbókanir. Meirihluti farþeganna skilaði sér því ekki og við eins og önnur ferðaþjónustufyrirtæki sátum upp með kostnað og mannskap,” segir Hallgrímur.

Hann vonast engu síður til þess að úr rætist og Bretarnir skili sér í febrúar. Margir þeirra sem áttu bóka far hingað í lok síðasta árs hafi til að mynda seinkað Íslandsdvölinni fram í næsta mánuð en þá eru norðurljósaferðir eitt helsta aðdráttaraflið. 

Hallgrímur segir þó ljóst vera að óvissan um framhaldið sé mikil þó Ísland sé vissulega vinsæll áfangastaður. 

„Hvort það skili okkur fjölda ferðamanna á næstunni ræðst algjörlega á því hver staðan verður á faraldrinum hér á landi og í heiminum öllum. Þar er ekkert í hendi ennþá nema gamla góða bjartsýnin.”

Spurður hvort ferðaþjónustan hafi úthald mikið lengur þá segir Hallgrímur að greinin hafi í raun verið sett á guð og gaddinn.

„Það eru engin úrræði lengur í boði fyrir ferðaþjónustuna hjá stjórnvöldum því viðspyrnustyrkir voru síðast veittir í nóvember. Þess vegna fór það illa í marga þegar veitingamönnum var boðið upp á sérstök úrræði í síðustu viku en horft framhjá okkur í ferðaþjónustunni.”

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …