Samfélagsmiðlar

Norsku nýliðarnir lækkuðu á meðan hin félög hækkuðu umtalsvert

SAS var það norræna flugfélag sem hækkaði mest í vikunni í kauphöllum.

Miklar hækkanir á gengi hlutabréfa flugfélaga einkenndu fyrstu daga ársins í norrænum kauphöllum. Gengi SAS, stærsta flugfélags Norðurlanda, hækkaði þannig um fimmtung en seig svo aðeins fyrir helgi.

Hækkun vikunnar hjá SAS nemur engu að síður um tólf af hundraði og sömu sögu er að setja af Norwegian. Icelandair hækkaði álíka mikið.

Gengi norska nýliðans Flyr féll aftur á móti umtalsvert en skýringin á því liggur komandi hlutafjárútboði félagsins þar sem ætlunin er að safna 250 milljónum norskra króna. Sú upphæð jafngildir um 3,6 milljörðum kr. Á miðvikudagsmorgun tilkynntu forsvarsmenn Flyr að gengið í útboðinu yrði 0,95 norskar kr. á hlut. Það var 57 prósentum undir gengi hlutabréfanna daginn áður. Og lækkunin er miklu meiri ef horft er til hlutafjárútboð félagsins í mars í fyrra þar sem hver hlutur kostaði 5 norskar krónur.

Í vikulegum samantektum Túrista á gengi norrænna flugfélaga í fyrra voru aðeins sex flugfélög á listanum en núna eru þau sjö. Skýringin er sú að Norse Atlantic hefur fengið flugrekstrarleyfi en viðskipti með hlutabréf í félaginu fara fram í norsku kauphöllinni.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …