Samfélagsmiðlar

Nýta næturnar í flug til Evrópu á nýjan leik

Umferðin um Leifsstöð í kringum miðnætti eykst á ný næsta sumar.

Í sumar verður hægt að fljúga héðan til Berlínar klukkan korter í eitt á nóttunni og lenda í þýsku höfuðborginni í morgunsárið.

Eitt af því sem einkenndi sumarvertíðarnar á Keflavíkurflugvelli var mikill fjöldi flugferða til Evrópu stuttu eftir miðnætti. Sumarið 2012 var til að mynda sjötta hver brottför á dagskrá fyrstu tvær klukkustundir sólarhringsins. Þoturnar lentu svo árla morguns á meginlandinu þar sem klukkan er tveimur tímum á undan á sumrin.

Airberlin var stórtækast í þessari útgerð enda bauð félagið vanalega upp á næturflug héðan til sex þýskra borga yfir sumarmánuðina. Þýska félagið fór hins vegar á hausinn árið 2017 og sumarið eftir felldi Icelandair niður sitt næturflug til Evrópu. Umferðin um Keflavíkurflugvöll snarminnkaði þar með á þessum tíma sólarhringsins.

Nú horfa stjórnendur Icelandair aftur á móti til þess að nýta næturnar á ný því á heimasíðu félagsins er í dag hægt að bóka næturflug héðan til Berlínar, Munchen, Parísar næsta sumar. Til viðbótar verða líka næturferðir til Kaupmannahafnar en þær hafa verið bókanlegar í lengri tíma líkt og Túristi fjallaði um í haust.

Þoturnar sem halda til meginlandsins eftir miðnætti snúa aftur til Keflavíkurflugvallar milli hálf níu og níu morguninn eftir. Það er nógu tímanlega fyrir þá farþega sem eru á leið beint til Boston en þangað munu þotur Icelandair fljúga klukkan 9:40 alla morgna næsta sumar. Næturflugið til Evrópu eykur því ekki bara valkosti þeirra sem eru á leið milli Íslands og Evrópu heldur líka þeirra sem ætla að fljúga alla leið til Boston.

Auk Icelandair þá bjóða flugfélögin Lufthansa, Eurowings, Czech Airlines, Wizz air og fleiri félög upp á brottfarir frá Keflavíkurflugvelli stuttu eftir miðnætti.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …