Auk Icelandair og Play þá eru fimm önnur norræn flugfélög skráð á hlutabréfamarkað. Fyrir heimsfaraldur voru þau bara fjögur en í fyrra bættust norsku lággjaldaflugfélögin Flyr og Norse við hópinn og auðvitað Play.
Og í vikunni sem nú er senn á enda þá var það stærsta félagið, SAS, sem leiddi hækkanirnar. Virði félagsins fór upp um nærri sjö af hundraði. Í því samhengi má rifja upp að hlutabréfin tóku mikla dýfu í lok október í fyrra eftir að nýr forstjóri SAS sagði félagið í raun berjast fyrir tilveru sinni.
Síðustu sex mánuði hafa bréf SAS því lækkað um þrjátíu prósent. Til samanburðar hefur verðmæti Icelandair farið upp um fjörutíu af hundraði á þessum sama tíma.