Samfélagsmiðlar

Segja hluthöfum að gera ráð fyrir áframhaldandi ókyrrð

Í byrjun vetrar fækkaði óseldu sætunum í þotum Ryanair umtalsvert og sætanýtingin í nóvember var til að mynda 86 prósent. Það háa hlutfall skrifast hins vegar á mjög lág fargjöld að því sem fram kemur í tilkynningu sem fylgir nýju uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Þar var niðurstaðan tap upp á 96 milljónir evra eða nærri 14 milljarða króna.

Í tilkynningu Ryanair segir jafnframt að þær ferðatakmarkanir sem kynntar voru til að hefta útbreiðslu ómíkrón afbrigðisins hafi dregið úr ferðalögum. Af þeim sökum hafi sætanýting Ryanair í desember sl. aðeins verið 81 prósent þrátt fyrir jóla- og áramótaferðir.

Vegna ástandsins sem ríkt hefur síðustu vikur þá skar Ryanair niður þriðjung flugáætlunar sinnar núna í janúar og stjórnendur Ryanair segja horfurnar varðandi þróun fargjalda vera óljósar. Ennþá bóki til að mynda farþegar með mjög stuttum fyrirvara og bjóða þurfi mjög lág fargjöld til að fá fólk um borð. Af þeim sökum eru hluthafar félagsins beðnir um að búa sig undir frekari raskanir í starfsemi félagsins áður en hægt sé að segja að heimsfaraldrinum sé lokið.

Þrátt fyrir þessar óljósu horfur þá eru stjórnendur Ryanair stórhuga og til marks um það þá mun félagið fimmtán nýjar starfsstöðvar í Evrópu á næstunni. Þar á meðal í Billund og Stokkhólmi. Rynair ætlar hins vegar að segja skilið við flugvöllinn í Frankfurt í Þýskalandi og segja stjórnendur félagsins að gjaldskrárhækkunum þar á bæ sé um að kenna.

Ísland er eitt fjögurra landa í Evrópu sem Ryanair flýgur ekki til en líkt og Túristi hefur áður greint frá þá hafa forsvarsmenn félagsins metið aðstæður hér á landi með reglulegu millibili.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …