Samfélagsmiðlar

Sóttust ekki eftir sömu leigukjörum og Play

Þoturnar tvær sem Icelandair leigði í gær koma frá flugvélaleigunni Dubai Aerospace. Það fyrirtæki tilkynnti í gær að keyptar hefður verið 14 Boeing Max þotur og þar af tvær leigðar til Icelandair. Hinar tólf fara til Aeroméxico.

Það verða fjórtán Boeing Max þotur í flugflota Icelandair næsta sumar en félagið tilkynnti í gær um leigu á tveimur þess háttar flugvélum til viðbótar við þær tólf sem félagið hafði áður tryggt sér. Til skoðunar var að bæta þeirri fimmtándu við en ekkert verður úr því eins og staðan er í dag.

Af þessum fjórtán Max þotum þá leigir Icelandair ellefu en í flota Play eru eingöngu leiguvélar.

Og stjórnendur Play hafa ítrekað bent á að leigukjörin sem þeir fengu hafi verið mjög hagstæð. Sérstaklega þar sem félagið þurfti í upphafi eingöngu að borga fyrir hvern floginn klukkutíma í stað þess að greiða fasta leigu á mánuði.

Forsvarsfólk Play er ekki það eina sem hefur hrósað happi yfir að hafa tryggt sér þess háttar kjör. Það gerðu stjórnendur Norwegian líka í desember sl. þegar þeir sögðu frá nýjum samningi um leigu á tveimur Boeing Max þotum. Þá kom fram í tilkynningu frá norska félaginu að samið hefði verið um að leigan næstu tvo vetur myndi miðast við notkun en ekki fast gjald. Kosturinn við þetta fyrirkomulag, að mati stjórnenda Norwegian, er sá að með þessu geta þeir stillt framboðinu í hóf á þeim tíma sem færri eru á ferðinni.

Spurður hvort Icelandair hefði líka sóst eftir sambærilegum kjörum og keppinautarnir þá segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, að það hafi ekki verið gert.

„Það eru mörg atriði í svona leigusamningum sem í heild mynda kjörin sem er samið er um. Við hefðum örugglega getað samið um „Power by the hour“ í einhvern tíma en það hefði komið niður á öðrum atriðum samningsins. Við stefnum á að nýta Max vélarnar vel allt árið um kring og erum mjög ánægð með kjörin í þessum samningum,“ skrifar Bogi í svari til Túrista.

Líkt og forstjóri Icelandair bendir á þá eru leigugreiðslur sem miðast við notkun aðeins í boði í takmarkaðan tíma. Til marks um það þá hefur Play þurft að greiða fulla leigu af sínum þotum frá og með áramótum. Félagið heldur þó uppteknum hætti og lætur flugvélarnar standa óhreyfðar á Keflavíkurflugvelli á miðvikudögum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …