Samfélagsmiðlar

Norsk lággjaldaflugfélög hamstra Max þotur

Norwegian var eitt þeirra flugfélaga sem nýtti Boeing Max þotur í flug til Íslands árið 2018 þegar flugvélar af þessari gerð voru nýjar af nálinni. Í mars 2019 voru hins vegar Max þotur kyrrsettar um heim allan í kjölfar tveggja flugslysa þar sem 346 manns missti lífið.

Á þeim tíma hafði Norwegian fengið afhentar átján af þeim hundrað og tíu Boeing Max flugvélum sem félagið hafði pantað á sínum tíma. Hluti af fjárhagslegri endurskipulagningu norska félagsins í hittifyrra var hins vegar að segja upp samningnum við Boeing. Sú uppsögn byggði á þeirri staðreynd að bandaríski flugframleiðandinn hafði ekki náð að afhenda vélarnar á umsömdum tíma.

Áhugi stjórnenda Norwegian á Boeing Max er þó ennþá til staðar því nýverið tilkynnti félagið um leigu á tveimur Max þotum fyrir komandi sumarvertíð. Og á fyrri helmingi næsta árs bætast tíu við að því segir í tilkynningu frá félaginu í dag. Samkvæmt svörum frá Norwegian, við fyrirspurn Túrista, eru þoturnar leigðar með skilmálum um að félagið greiði aðeins fyrir hvern floginn klukkutíma til að byrja með.

Þetta er sama leið og Play hefur farið í leigu á sínum vélum. Stjórnendur Icelandair hafa hins vegar ekki kosið þessi kjör eins og forstjóri félagsins fór nýverið yfir hér á síðunni í tengslum við samning félagsins um leigu á tveimur Max þotum.

Norwegian er ekki eina norska lággjaldaflugfélagið sem mun fljúga farþegum sínum í Max flugvélum því í síðustu viku tók Flyr á móti fyrstu sinni þotu af þessari gerð. Félagið fær samtals sex Boeing Max vélar á næstu mánuðum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …