Samfélagsmiðlar

Stefnir í 75 prósent afköst hjá erlendu flugfélögunum

Tvö lágfargjaldafélög munu standa undir meira en helmingi umsvifa erlendra flugfélaga á Keflavíkurflugvelli í næsta mánuði.

Vetraráætlun fluggeirans lýkur formlega í lok mars og það stefnir í að ferðir á vegum erlendra flugfélaga til og frá Keflavíkurflugvelli verði aðeins meiri þá en nú í febrúar. Núna eru í sölu um 380 brottfarir í mars á vegum þeirra erlendu sem er viðbót um nærri fimmtung frá því nú febrúar.

Í samanburði við mars 2019 þá verða ferðirnar hins vegar fjórðungi færri. Þetta sýna talningar Túrista á því Íslandflugi sem er í sölu í dag á heimasíðum erlendra flugfélaga og ferðaskrifstofa.

Tvö félög með meira en helming

Sem fyrr eru það Easyjet og Wizz Air sem eru langumsvifamest í Íslandsflugi erlendra flugfélaga. Skiptir þá engu þó Easyjet hafi fækkað ferðunum hingað um nærri því helming frá því í mars 2019. Núna stefnir breska félagið á 111 ferðir hingað frá Bretland en á dagskrá Wizz Air eru 96 ferðir frá sex evrópskum löndum. Þar af frá fjórum ítölskum borgum en í lok mars tekur Wizz Air upp þráðinn í flugi hingað frá Napólí og Róm. Jómfrúarferð félagsins til Íslands frá Feneyjum er svo á áætlun þann 29. mars.

Í heildina munu Wizz Air og Easyjet standa undir ríflega annarri hverri brottför erlendra flugfélaga frá Keflavíkurflugvelli í næsta mánuði.

Flestar ferðir til Bretlands

Bretar sækjast helst eftir Íslandsferðum í febrúar og mars og það þarf því ekki að koma á óvart að framboð í næsta mánuði er mest þegar kemur að flugi milli Íslands og Bretlands. Þar á eftir kemur Mið-Evrópa enda tíðar ferðir á boðstólum til borga eins og Amsterdam, Parísar og Frankfurt. Fimmta hver þota sem tekur á loft frá Keflavíkurflugvelli í næsta mánuði setur svo stefnuna á Norður-Ameríku. Og allar verða flugvélarnar merktar Icelandair því það er fyrst í apríl sem félagið fær á ný samkeppni í flugi vestur um haf.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …