Samfélagsmiðlar

Horfa til fleiri áfangastaða í Danmörku

Forstjóri Play segir valið standa á milli tveggja danskra flugvalla.

Í dag er Kaupmannahöfn eini áfangastaður Play í Danmörku.

Kaupmannahöfn hefur ávallt verið fastur liður í flugáætlunum íslenskra flugfélaga og núna geta farþegar á leið héðan til dönsku höfuðborgarinnar valið á milli reglulegra ferða með Icelandair, Play og SAS. Icelandair situr hins vegar eitt að ferðunum milli Íslands og Billund á Jótlandi. Á því gæti þó orðið breyting næsta sumar.

Stjórnendur Play horfa nefnilega til áfangastaðar á Jótlandi fyrir sumarið 2023. Og þar koma tveir til greina að sögn Birgis Jónssonar, forstjóra Play, sem ræddi áform félagsins í Danmörku við dönsku flugfréttasíðuna Checkin.dk. Bæði Billund og Árósar koma til greina þegar Play stækkar leiðakerfi sitt næsta sumar þegar flugfloti félagsins mun telja tíu Airbus þotur.

Ef Árósar verða fyrir valinu þá verður það í fyrsta sinn sem áætlunarflugi er haldið úti héðan til þessarar næstfjölmennustu borgar Danmerkur.

Sem fyrr segir er Billund hluti af leiðakerfi Icelandair en þó aðeins yfir sumarmánuðina. Nú í sumar er gert ráð fyrir þremur ferðum í viku en á sínum tíma þá hélt Iceland Express úti reglulegum ferðum til Billund og Wow Air spreytti sig líka á jóska flugvellinum sem er skammt frá Legolandi.

Icelandair hefur einnig flogið stakar ferðir til Billund í kringum jól og áramót en þúsundir Íslendinga búa á Jótlandi.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …