Samfélagsmiðlar

Umsókn Wizz Air um flug til Bandaríkjanna mætir andstöðu

Keflavíkurflugvöllur er í dag vestasti áfangastaðurinn í leiðakerfi ungverska lággjaldaflugfélagsins Wizz Air. Á því gæti orðið breyting á fyrr en síðar því stjórnendur félagsins hafa sótt um leyfi fyrir ferðum til Bandaríkjanna.

Þessi áform mæta hins vegar andstöðu ALPA, stærstu flugmannasamtaka Bandaríkjanna, sem skora á þarlend flugmálayfirvöld að hafna beiðni Wizz Air um leyfi fyrir leigu- og fraktflugi vestur um haf samkvæmt frétt Flight Global. Í umsögn ALPA er vísað til þess að stjórnendur Wizz Air virði ekki rétt starfsmanna til að ganga í stéttarfélög og fullyrt er að flugmenn ungverska félagsins séu neyddir til að mæta í vinnu á frídögum og jafnvel þegar þeir eru veikir.

Óljós áform

Ekki liggur fyrir hvaða tækifæri stjórnendur Wizz Air sjá í flugi til Bandaríkjanna en sem fyrr segir snýst umsókn þeirra til bandarískra flugmálayfirvalda um frakt- og leiguflug en ekki áætlunarflug. Alla vega ekki enn sem komið er.

Í því samhengi má þó rifja upp að það eru Indigo Partners sem fara með tögl og haldir í Wizz Air en þetta bandaríska fjárfestingafélag skoðaði á sínum tíma möguleikann á að kaupa Wow Air af Skúla Mogensen.

Sniðganga í Noregi

Ísland hefur verið hluti af flugáætlun Wizz Air um langt árabil og félagið heldur í dag úti ferðum hingað frá þrettán evrópskum borgum. Hér á landi hefur umræða um lág laun áhafna flugfélagsins og viðhorf stjórnenda þess tilverkalýðsfélaga þó aldrei komist á flug.

Það gerðist hins vegar í Noregi þegar Wizz Air ætlaði að hasla sér völl í innanlandsflugi þar í landi. Þá beindi forsvarsfólk norskra stéttarfélaga þeim tilmælum til félagsmanna að sniðganga flugfélagið. Forstjóri Wizz Air gaf lítið fyrir þessa andstöðu og hélt því fram í viðtalið við norska viðskiptablaðið Dagens Næringsliv að öll þau flugfélög sem ynnu með stéttarfélögum væru í raun á barmi gjaldþrots.

Hvað sem þessari skoðun forstjórans viðkemur þá batt Wizz Air enda á útgerð sinni í Noregi og flutti þoturnar sem þar voru á ítalska flugvelli. Í dag fljúga þessar sömu flugvélar til Íslands því Wizz Air býður upp á ferðir hingað til lands frá fjórum ítölskum borgum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …