Samfélagsmiðlar

Apríl verður vendipunkturinn

Það ætti ekki að verða tómlegt um að litast í Leifsstöð í næsta mánuði.

Þó flugumferðin um Keflavíkurflugvöll hafi verið að aukast töluvert síðustu mánuði þá hefur hún verið umtalsvert minni en fyrir heimsfaraldur.

Nú eru hins vegar tímamót framundan því í apríl eru á dagskrá jafn margar brottfarir og voru farnar á sama tíma árið 2019. Þetta sýnir samantekt Túrista sem byggir á talningu á þeim ferðum sem eru í sölu í dag og hins vegar öllu flugi frá Keflavíkurflugvelli í apríl árið 2019.

Núna eru á dagskrá að jafnaði 45 brottfarir á dag og svo margar voru þær líka í apríl 2019. Þann mánuð hefðu ferðirnar reyndar átt að vera um tveimur fleiri á dag en hátt í fimmtíu áætlunarferðum var aflýst. Óhætt er að gera ráð fyrir að einhverjar breytingar verði líka á flugáætluninni að þessu sinni.

Að öllu óbreyttu mun umferðin um Keflavíkurflugvöll í apríl þó verða á pari við það sem var fyrir heimsfaraldur. Batinn á íslenska flugmarkaðinum er því hraðari en víða annars staðar.

Ennþá langt í metárið 2018

Það verður þó að hafa tvennt í huga varðandi stöðuna. Í fyrsta lagi þá varð umtalsverður samdráttur í flugi til og frá Keflavíkurflugvelli í kjölfar gjaldþrots Wow Air í lok mars 2019.

Flugferðirnar í apríl 2019 voru þrjátíu prósent færri en sama tíma árið á undan og farþegunum á Keflavíkurflugvelli fækkaði um 27 prósent. Samdrátturinn í fjölda erlendra brottfararfarþega var minni eða 19 prósent samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Skýringin á lægra hlutfalli er sú að með falli Wow Air fækkaði skiptifarþegunum umtalsvert.

Íslenski flugmarkaðurinn fékk því þungt högg árið 2019 öfugt við það sem var raunin út í heimi.

Verri sætanýting

Það ber líka að horfa til þess að þoturnar eru ekki eins þéttsetnar og þær voru hér áður. Í hverri flugferð eru að jafnaði nokkru færri farþegar og því ekki hægt að gera ráð fyrir að straumur ferðamanna til landsins í apríl verði sambærilegur við það sem var í apríl 2019.

Þá innrituðu 120 þúsund útlendingar sig í flug frá Keflavíkurflugvelli en til samanburðar voru þeir 76 þúsund í febrúar í ár.

Í næsta mánuði má gera ráð fyrir að Icelandair standi fyrir rétt um sex af hverjum tíu áætlunarferðum frá Keflavíkurflugvelli og Play verði með um tíundu hverja brottför.

Áhugasamir lesendur um ítarlegri upplýsingar um flugumferðina um Keflavíkurflugvöll næstu mánuði geta sent fyrirspurn á [email protected]

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …