Samfélagsmiðlar

„Bókið núna“

Carsten Spohr forstjóri Lufthansa lengst til vinstri og Michael O´Leary forstjóri Ryanair lengst til hægri.

Hátt olíuverð og hækkandi verðbólga mun skila sér út í fargjöldin fljótlega. Um þetta er forstjórar stærstu flugfélaga Evrópu sammála um. Það er þó ekki víst að þessi hækkun muni koma fram alveg strax.

Framboð á flugi nú í apríl og maí er nefnilega umtalsvert meira en eftirspurnin að mati Michael O´Leary, forstjóra Ryanair. Vísaði hann til þess að flugfélög séu núna að setja allt á fullt á ný eftir ládeyðu síðustu missera.

Forstjóri írska lágfargjaldafélagsins gerir því ráð fyrir fargjöldin í vor verði lægri en þau voru á sama tíma árið 2019. Í sumar ætti þróunin hins vegar að snúast við og farmiðaverðið þá almennt hærra en fyrir þremur árum síðan. Þetta kom fram í máli O´Leary á ráðstefnu hagsmunasamtakanna Airlines4Europe sem nú fer fram í Brussel.

Írski forstjórinn bætti því hins vegar við að ástandið á markaðnum væri viðvæmt og þá helst vegna stríðsins í Úkraínu.

Forstjóri Lufthansa, Carsten Spohr, tók undir spá starfsbróður síns hjá Ryanair um hækkandi fargjöld. Ráðlagið þýski forstjórinn því fundargestum að bóka flugmiða sumarsins um leið og hann hefði lokið máli sínu.

Spohr minnti þó á að fargjöld hefðu lækkað mjög mikið í Evrópu síðustu áratugi og yrðu ekki á ný álíka há og þau voru undir lok síðustu aldar. Flug innan Evrópu yrði áfram á viðráðanlegu verði fyrir flesta.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …