Samfélagsmiðlar

Virði allra norrænu flugfélaganna lækkaði

Það hafa verið miklar sveiflur á gengi hlutabréfa í flugfélögum allt frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Áhrif stríðsins á flugrekstur eru nefnilega margvísleg og þar vegur þungt hið háa olíuverð.

Í vikunni hafa til að mynda stjórnendur Play bætt sérstöku eldsneytisálagi við sín fargjöld og Icelandair hækkar núgildandi álag um helming um mánaðamótin.

Þess má þó að geta að Icelandair hefur gert athugasemd við þá frétt og vísar upplýsingafulltrúi félagsins til þess að hækkunin sé hlutfallslega minni en sem nemi helmingi. Í athugasemdinni segir að Icelandair hafi hækkað eldsneytisgjald árið 2018, úr 4.600 kr. í 5.100 kr. í flugi til Evrópu. Hvað sem þessari verðhækkun líður þá er ljóst að félagið hefur ekki látið hennar getið á heimasíðu sinni því þar segir að eldsneytisálagið sé 4.600 kr. og við þær upplýsingar studdist Túristi við sína útreikninga.

Að hve miklu leyti íslensku félögin koma eldsneytishækkuninni út í verðlagið með hækkandi eldsneytisálagi á eftir að koma í ljós. En ljóst er að í vikunni sem nú er senn á enda þá lækkaði markaðsvirði Play og Icelandair. Og sömu sögu er að segja af gengi bréfa í hinum fimm norrænu flugfélögunum sem skráð eru á markað eins og sjá má á grafinu.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …