Samfélagsmiðlar

Bæta við ferðum til Rómar

Það verður samkeppni um farþega á leið héðan til Rómar fram í lok október.

Wow Air, Norwegian, Vueling hafa öll haldið úti áætlunarflugi frá höfuðborg Ítalíu til Keflavíkurflugvallar og nú fljúga þotur Wizz Air þessa leið þrisvar í viku. Icelandair ætlar líka að spreyta sig á flugi til Rómar og er fyrsta ferða á dagskrá í byrjun júlí.

Þegar þessi áform voru kynnt í ársbyrjun var gert ráð fyrir tveimur ferðum í viku fram í byrjun september. Nú er hins vegar hægt að bóka far með Icelandair beint til Rómar fram í lok október en þá hefst vetraráætlunin formlega. Þotur Icelandair munu því fljúga til Leonardo da Vinci flugvallar tvöfalt oftar en upphaflega var lagt upp með.

Félagið ætlar þó ekki að veita Wizz Air samkeppni í Róm næsta vetur en ungverska flugfélagið gerir ráð fyrir að halda takti í Íslandsfluginu frá Róm fram í lok mars á næsta ári í það minnsta.

Sama dag og Icelandair hóf sölu á farmiðum til Rómar þá kynnti félagið jafnframt áform um áætlunarflug til frönsku borgarinnar Nice. Ferðunum þangað hefur þó ekki verið fjölgað og ennþá bara gert ráð fyrir beinu flugi héðan til suðurhluta Frakklands í tvo mánuði. Ekkert annað flugfélag heldur úti ferðum héðan til Nice.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …