Samfélagsmiðlar

Telja fulla ástæðu til að fylgjast með stöðu Icelandair

Bogi Nils Bogason er bæði forstjóri Icelandair og stjórnarformaður ferðaskrifstofunnar Vita.

Samkeppnisyfirvöld gáfu í morgun samþykki sitt fyrir yfirtöku Ferðaskrifstofu Íslands á Heimsferðum en þó með fyrirvörum. Sameinað félag verður til að mynda að selja keppinautum sínum sæti í leiguflug en þó ekki Icelandair eða ferðaskrifstofunni Vita sem eru í eigu flugfélagsins.

Í úrskurði Samkeppnisyfirlitsins um fyrrnefndan samruna er talsvert fjallað um stöðu Icelandair samsteypunnar á markaði fyrir ferðalög Íslendinga. Það segir hins vegar að samrunamál keppinauta Icelandair sé ekki rétti vettvangur til að rannsaka vísbendingar, ábendingar eða kvartanir um mögulegar samkeppnishindranir sem leiða kunna af stöðu eða háttsemi flugfélagsins.

„Full ástæða er hins vegar til þess að fylgjast í framhaldinu með áhrifum Icelandair-samstæðunnar á ferðaþjónustumarkaði,“ segir í úrskurði Samkeppniseftirlitsins.

Líkt og Túristi hefur fjallað um þá hefur Icelandair stóraukið flug til áfangastaða eins og Tenerife og Alicante og bætt við fleiri áfangastöðum við Miðjarðarhafið. Einnig hefur félagið bætt við framboð á skíðaferðum.

Á sama tíma hefur rekstur Vita ferðaskrifstofunnar verið færður inn á skrifstofur Icelandair en Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, er jafnframt stjórnarformaður Vita.

Aðspurður um þessi auknu umsvif Icelandair þá staðfesti Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, í viðtali við Túrista sl. haust, að umsvif Icelandair og Vita hafi verið til skoðunar í tengslum við fyrrnefndan samruna.

Páll Gunnar vísaði þá til þess að bæði Samkeppniseftirlitið og dómstólar hafi á fyrri tíð metið fyrirtæki í Icelandair samstæðunni markaðsráðandi á tilteknum mörkuðum. Til að mynda í flugi á tilteknum flugleiðum og í flugþjónustu. 

„Bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu kann því að setja fyrirtækjum í þeirri samstæðu skorður. Samkeppniseftirlitið hefur hins vegar enga afstöðu tekið til þessa,“ bætti forstjóri Samkeppniseftirlitsins við.

Til marks um hlutdeild Icelandair á markaðnum þá flugu um 26 þúsund farþegar frá Íslandi til Tenerife á fyrstu þremur mánuðum ársins samkvæmt tölum frá spænskum flugmálayfirvöldun. Af þessum fjölda sátu um 12 þúsund farþegar í þotum Icelandair. Play flutti um níu þúsund og rétt um fimmtungur farþega nýtti sér leiguflug Ferðaskrifstofu Íslands og Heimsferða.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …