Samfélagsmiðlar

Leigan á Max þotum hefur hækkað hratt

Hinar umtöluðu farþegaþotur eru eftirsóttar á ný.

Leigukjörin nýjum farþegaþotum hafa versnað síðustu þrjá til fimm mánuði að sögn forstjóra Norwegian.

Nú í ársbyrjun var hægt að leigja nýjar Boeing Max þotur fyrir 300 þúsund dollara á mánuði en sú upphæð jafngildir um 40 milljónum króna. Kjörin í dag eru ekki eins góð að sögn Geir Karlsen, forstjóra Norwegian, sem fór yfir stöðuna á uppgjörsfundi félagsins í síðustu viku.

Norwegian þarf á fleiri Max þotum að halda en samkvæmt forstjóra norska félagsins hefur leigan á nýjum þess háttar flugvélum hækkað um að minnsta kosti 50 þúsund dollara að undanförnu. Sú viðbót jafngildir nærri sjö milljónum króna sem þýðir að leigan er komin upp í um 1,5 milljón kr. á sólarhring. Forstjóri Norwegian sagðist því horfa til þess að kaupa fleiri þotur í framtíðinni í stað þess að leigja.

Icelandair er einnig með til skoðunar að fjölga Max þotunum hjá sér og er bæði horft til þess að leigja þær og kaupa. Í flota Icelandair í dag eru tólf Boeing Max og þar af á flugfélagið fjórar. Nú í sumarbyrjun bætast við tvær leiguvélar í viðbót en þær eru báðar af minni gerð Max þota og með sæti fyrir 160 farþega.

Að jafnaði nýtir Icelandair hverja Max þotu í þrjár ferðir á dag og hver og ein getur þá flutt að hámarki 480 farþega sólarhring. Leiguverðið sem er á markaðnum í dag jafngildir þar með hálfri milljón króna á hverja flugferð eða um þrjú þúsund krónum á hvert sæti.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …