Icelandair er komið með tólf Max þotur og von á er tveimur til viðbótar fyrir sumarvertíðina. Þær tvær eru teknar á leigu hjá flugvélaleigu í Dubaí. Flugfélagið sjálft er aðeins skráður eigandi að fjórum Max þotum en fleiri gætu bæst við þann hóp fyrr en síðar.
Í svari til Túrista staðfestir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, að tækifæri til að bæta við Max vélum séu til skoðunar og þar sé bæði horft til þess að kaupa vélar og leigja.
Guðni bendir á að niðurstöður mats á flotastefnu Icelandair hafi sýnt að núverandi samsetning flugvéla henti vel til næstu ára enda hafi Max vélarnar komið afar vel út í rekstrinum.
Í því samhengi má rifja upp að Icelandair hefur náð að nýta þoturnar í ferðir á lengstu flugleiðunum í leiðakerfi félagsins enda hafa þær hafa reynst langdrægari en upphaflega var reiknað með.
Það má líka ljóst vera að endurnýjun flugflotans eru ein helsta forsenda þess að Icelandair nái að draga umtalsvert úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna rekstursins. Boeing 757 og 767 þotur félagsins eru komnar til ára sinna og nota því mun meira eldsneyti en þær nýju. Nú þegar olíuverð er mjög hátt þá er hvatinn til að draga úr notkun þeirra gömlu meiri.
Til marks um það þá voru Max þotur nýttar í sjö af tólf áætlunarferðum Icelandair í morgun. En um leið dregst framboðið saman því í nýju flugvélunum eru færri sæti en í þeim gömlu. Með Boeing 757 flugvélunum komast 183 farþegar en aðeins 160 í Max 8 og sætin í Max 9 eru 178.