Samfélagsmiðlar

Umtalsvert meiri eftirspurn eftir Íslandsflugi Delta í ár

Þotur Delta munu fljúga tvær ferðir á dag til Keflavíkurflugvallar nú í sumar.

Samkeppnin um farþega á leið milli Íslands og New York í sumar verður hörð enda fjögur flugfélög með daglegar ferðir á þessari leið. Og fargjöldin í júlí hafa hækkað hjá þremur þeirra en aftur á móti lækkað hjá Icelandair líkt og verðkönnun Túrista í síðustu viku sýndi.

Hjá Delta hefur farmiðaverðið farið upp á við og uppselt í hluta af brottförunum í júlí en félagið nýtir breiðþotur í ferðir sína hingað frá JFK flugvelli í New York.

Spurður um þessa stöðu þá segir talsmaður Delta að eftirspurn eftir flugi félagsins til Íslands sé umtalsvert meiri en í fyrra. Bókunarstaðan er góð og í ferðunum frá JFK flugvelli í New York er eftirspurnin sérstaklega mikil eftir sætunum fremst í þotunum, á Delta One farrýminu og eins Delta Premium Select.

Í svari félagsins segir jafnframt að flugið til Íslands hafi alltaf verið mjög vinsælt hjá bandarískum ferðamönnum og útlit fyrir að svo verði líka í ár og margar brottfarir verði uppseldar.

Útiloka ekki veturinn

Fyrstu árin sem Delta flaug hingað til lands þá var ferðunum haldið úti frá vori og fram á haust. Síðar bættust við áætlunarflug yfir vetrarmánuðina en ekki er gert er ráð fyrir þess háttar næsta vetur. Talsmaður Delta segir hins vegar að endurskoðun á vetraráætluninni standi nú yfir og ef það verði gerðar breytingar þá verði tilkynnt um þær með góðum fyrirvara.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …