Samfélagsmiðlar

Bilið milli íslensku og erlendu flugfélaganna breikkar

Það sem af er ári hefur vægi Icelandair og Play aukist á kostnað útlendu keppinautanna.

Farþegar í Leifsstöð eru líklegast á leið úr landi með annað hvort Icelandair eða Play.

Þrátt fyrir að sextán erlend flugfélög haldi úti áætlunarflugi til Keflavíkurflugvallar þessa dagana þá er hlutdeild þeirra ekki há í samanburði við íslensku flugfélögin tvö.

Í nýliðnum maí voru sex af hverjum tíu brottförum á vegum Icelandair á meðan Play stóð fyrir þrettán prósent af ferðunum. Samanlagt voru öll hin flugfélögin með 28 prósent hlutdeild sem er minna en verið hefur í ár eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.

Í febrúar var vægi erlendu flugfélaganna fjörutíu prósent en síðan þá hefur fjöldi ferða á vegum Icelandair og Play nærri þrefaldast, farið úr 482 í 1242. Keppinautar íslensku félaganna á Keflavíkurflugvelli hafa aftur á móti fjölgað sínum brottförum um helming eða úr 324 í 480.

Það að íslensk flugfélög haldi uppi samgöngum til og frá Keflavíkurflugvelli eru ekki ný tíðindi. Í maí árið 2018 var hlutdeild Icelandair 47 prósent á meðan Wow Air stóð fyrir þriðju hverri ferð. Ein af hverjum tíu ferðum var á vegum flugfélags Andra Más Ingólfssonar, Primera Air. Erlendu félögin voru þá með rétt um fimmtung af ferðunum.

Gera má ráð fyrir að vægi íslenskra flugrekenda eigi eftir að hækka næstu mánuði í takt við aukin umsvif Play. Auk þess stefnir Icelandair á að ná fyrri styrk á meðan Íslandsflug erlendra flugfélaga er, enn sem komið er, í nokkuð föstum skorðum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …