Samfélagsmiðlar

Óvenju margir íslenskir hótelgestir í höfuðborginni

Canopy by Hilton hótelið í Reykjavík.

Ferðalög milli landa voru flókin á tímum Covid-19 og þá ferðuðust Íslendingar innanlands í mun meira mæli en áður. Ásóknin í reykvísk hótel var þó lítil á þessum tíma og mörg þeirra lokuð eða nýtt sem sóttvarnarhótel.

Nú þegar fólk getur ferðast út í heim á ný þá hefur ásókn landans í gistingu í höfuðborginni hins vegar aukist umtalsvert. Fyrstu fjóra mánuði ársins stóðu Íslendingar til að mynda undir miklu fleiri gistinóttum á hótelum höfuðborgarinnar en dæmi eru um. Sérstaklega í mars og apríl eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.

Í heildina voru gistinætur merktar Íslendingum 90 þúsund talsins í janúar til apríl sem er tvöföldun frá sama tíma árin 2019 til 2021. Í samanburði við fyrstu fjóra mánuðina árið 2018 er nemur viðbótin þriðjungi.

Spurð um þennan fjölda íslenskra hótelgesta í Reykjavík þá bendir Hildur Ómarsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Icelandairhótelanna, á að viðburðir á vegum fyrirtækja og vinnustaða hafa verið fjölmargir í mars og apríl. Þar á meðal árshátíðir og ráðstefnur enda hafi verið uppsöfnuð þörf fyrir þess háttar samkomur eftir heimsfaraldurinn.

Og þá eru það ekki eingöngu þeir sem koma utan af landi sem gista á hótelunum heldur líka íbúar höfuðborgarsvæðsins.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …