Samfélagsmiðlar

Sjö af hverjum tíu sætum skipuð farþegum á nýju flugleiðinni

Boeing Max8 þota Icelandair við flugstöðina í Raleigh-Durham.

Icelandair býður upp á áætlunarflug til fjórtán áfangastaða í Norður-Ameríku og allir nema einn hafa áður verið hluti af leiðakerfi félagsins.

Eina viðbótin er Raleigh-Durham í Norður-Karólínufylki Bandaríkjanna en fyrsta ferðin þangað var á dagskrá þann 12. maí. Síðan þá hefur Icelandair flogið til bandaríska flugvallarins fjórum sinnum í viku og samtals nýttu 2.634 farþegar sér þessar ferðir í maí samkvæmt tölum frá flugmálayfirvöldum í Raleigh-Durham.

Það þýðir að 69 prósent sætanna í ferðum Icelandair hafi verið bókuð í maí samkvæmt útreikningum Túrista. Til samanburðar var sætanýtingin í alþjóðaflugi Icelandair í maí 74 prósent.

Icelandair notar minnstu þoturnar sínar, Boeing Max8, í ferðirnar til Raleigh-Durham en í þeim eru aðeins sæti fyrir 160 farþega. Til samanburðar eru 183 sæti í gömlu Boeing 757 þotunum sem hafa verið uppistaðan í flugflota Icelandair síðustu áratugi.

Og þess sjást merki í sumaráætlun Icelandair fyrir næsta ár að stjórnendur félagsins sjá tækifæri til í frekari umsvifum í Norður-Karólínu. Ferðunum til Raleigh-Durham verður nefnilega fjölgað úr fjórum í fimm í viku samkvæmt bókunarvef flugfélagsins.

Fréttin var uppfærð og vegna villu við samlagningu. Í fyrri útgáfu var talað um 92 prósent sætanýtingu en raunin er s.s. 69 prósent nýting. Beðist er velvirðingar á þessari villu.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …