Samfélagsmiðlar

Tekjurnar upp í takt við Finnair en öðru máli gegnir um kostnaðinn

Max þota Icelandair við bandaríska flugvöllinn Raleigh-Durham.

Stjórnendur flugfélaga hafa litlar áhyggjur þurft að hafa af sölu flugmiða að undanförnu því eftirspurnin hefur aukist gríðarlega eftir að sóttvarnaraðgerðir heyrðu sögunni til. Framboðið í sumar er líka minna en í eðlilegu árferði og við þessar aðstæður hækka fargjöldin eins og uppgjör flugfélaga sýna.

Þannig voru tekjur Icelandair á hvern farþega hærri á síðasta ársfjórðungi en þær voru árið 2019. Þó verður hafa verður í huga að félagið bókfærði skaðabætur frá Boeing sem farþegatekjur það ár.

Ef við horfum hins vegar til þróunarinnar í ár þá hækkuðu einingatekjur Icelandair um 23 prósent milli fyrsta og annars ársfjórðungs. Hjá hinu finnska Finnair nam hækkunin 21 prósenti en önnur norræn flugfélög hafa ennþá ekki birt uppgjör sín fyrir fjórðunginn.

Á sama tíma og tekjurnar rjúka upp þá hækkar kostnaðurinn sem skrifast á miklu hærra eldsneytisverð. Einingakostnaður að frátöldum olíukaupum hefur hins vegar lækkað umtalsvert. Sérstaklega hjá Icelandair þar sem hann lækkaði um nærri þriðjung milli fyrstu tveggja ársfjórðung.

Hjá finnska félaginu lækkaði hann um tíund en þess ber að geta að Finnair á í vanda með að halda úti eðlilegri starfsemi. Ennþá eru sóttvarnaraðgerðir almennar á helstu mörkuðum félagsins í Asíu og þangað þurfa þoturnar að fljúga lengri leið en áður þar sem rússnesk lofthelgi er lokuð. Kostnaðurinn við finnsku útgerðina er því hærri en ella. Stjórnendur Icelandair þurfta ekki að takast á við þessa snúnu stöðu.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig einingatekjur og -kostnaður Icelandair hefur þróast að undanförnu í krónum talið en Icelandair birtir þessar upplýsingar í bandaríkjadollurum. Túristi mun birta frekari samanburð á uppgjör Icelandair og annarra flugfélaga þegar tilefni gefst til. Það er hins vegar nærri mánuður í að stjórnendur Play birti sitt uppgjör fyrir apríl til júní.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …