Samfélagsmiðlar

Bæta við mörg þúsund flugsætum til Keflavíkur í vetur en bíða aðeins lengur með Akureyri

Áform flugfélaganna fyrir veturinn eru að skýrast.

Undir árslok er viðbúið að breskum farþegum fjölgi umtalsvert í Leifsstöð

Yfir vetrarmánuðina eru Bretar fjölmennastir í hópi ferðamanna hér á landi og miðað við framboð á flugi verður engin breyting á því nú í vetur. Áætlunarferðirnar hingað frá Bretlandi verða nefnilega töluvert fleiri en frá Norður-Ameríku og Mið-Evrópu samkvæmt talningum Túrista.

Það er breska lágfargjaldafélagið Easyjet sem er stórtækast í flugi milli Íslands og Bretlands og nú í vetur stefnir félagið á meiri umsvif á Keflavíkurflugvelli en mánuðina fyrir heimsfaraldurinn.

Í desember næstkomandi eru til að mynda 188 brottfarir í sölu frá Bretlandi til Íslands eða um sjö prósent fleiri en í sama mánuði árið 2019. Viðbótin nemur alla vega um tvö þúsund flugsætum í þessum eina mánuði. Í febrúar á næsta ári fjölgar sætunum ennþá meira eða um hátt fjögur þúsund í samanburði við stöðuna í febrúar 2020. Endanlegt sætaframboð ræðst af því hversu stórar flugvélar Easyjet mun nota í ferðirnar hingað en félagið hyggst fljúga hingað frá Bristol, London, Manchester og Edinborg.

Til viðbótar gerir vetrardagskrá Easyjet ráð fyrir áætlunarflugi hingað frá Mílanó á Ítalíu.

Sem fyrr segir er ekkert annað flugfélag jafn stórtækt í flugi milli Íslands og Bretlands yfir vetrarmánuðina og nýverið greindi Fréttablaðið frá athugun Easyjet á flugi til Akureyrar. En samkvæmt því sem Túristi kemst næst þá verður það í fyrsta lagi í lok árs 2023 sem þotur breska félagsins munu setja stefnuna á höfuðstað Norðurlands.

Aftur á móti ætlar Niceair að halda úti áætlunarflugi frá Akureyri til bæði London og Manchester í vetur. Þær ferðir voru reyndar teknar úr sölu eftir að vandræði komu upp varðandi lendingarleyfi í Bretlandi og ennþá er ekki hægt að bóka ferðir með Niceair til breskra borga.

Til viðbótar við ferðir Easyjet til Bretlands frá Keflavíkurflugvelli þá geta farþegar líka valið úr tíðum ferðum til breskra borga hjá British Airways, Icelandair, Play og Wizz Air. Auk þess verður Jet2 með stakar ferðir og eins ferðaskrifstofan Tui.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …