Samfélagsmiðlar

Greiðslukortanotkun á veitingastöðum aldrei meiri

Greiðslukortaviðskipti á íslenskum matsölustöðum námu fimmtíu milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Svo mikil voru þau ekki á árunum fyrir heimsfaraldur. Hækkunin er töluvert umfram verðlagshækkanir.

Frá veitingastaðnum Snaps í Reykjavík.

Í heimsfaraldrinum dróst notkun erlendra greiðslukorta skiljanlega mikið saman hér á landi enda fáir ferðamenn á svæðinu. Fyrstu sex mánuðina í fyrra nam erlend kortavelta á veitingastöðum rétt rúmlega tveimur milljörðum króna og var um tíu milljörðum kr. lægri en á fyrri helmingi ársins 2019.

Á sama tíma jókst noktun íslenskra korta aðeins um þrjá milljarða og heildarkortavelta nam því eingöngu 34 milljörðum fyrstu sex mánuðina í fyrra en var rétt rúmlega fjörutíu milljarðar á fyrri helmingi 2018 og 2019.

Í ár hefur hins vegar orðið verulegur viðsnúningur því fyrstu sex mánuðina nam kortavelta 50,5 milljörðum króna samkvæmt gögnum Rannsóknarseturs verslunnar. Þar sést að íslensk kort voru nýtt til að greiða fyrir þrjá fjórðu hluta upphæðarinnar en þau erlendu fyrir fjórðung.

Vægi útlendu kortanna fór aftur á móti upp í 35 prósent í júní síðastliðnum sem er í takt við það sem var yfir háannatímann á árunum fyrir heimsfaraldur enda koma hingað langflestir ferðamenn yfir sumarmánuðina þrjá. Það má því búast við að erlendu kortin hafi vegið ennþá þyngra í júlí og það verði líka raunin í ágúst eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.

Rauða lína sýnir hver hlutdeild útlendu kortanna var árið 2019 og sú bláa lýsir stöðunni það sem af er þessu ári.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …