Samfélagsmiðlar

Fjölga sætunum í Íslandsfluginu upp í 27 þúsund þarnæsta vetur

Það stefnir í að flogið verði til Íslands frá enn fleiri breskum borgum veturinn 2023 til 2024.

Haustið 2023 verður hægt að fljúga beint til Keflavíkurflugvallar frá Newcastle.

Öfugt við flestar aðrar þjóðir þá sækja Bretar helst í ferðir til Íslands yfir vetrarmánuðina. Í venjulegu árferði eru bresku ferðalangarnir hér á landi fleiri í febrúar en samanlagt yfir sumarmánuðina þrjá. Og ferðafrömuðir í Bretlandi sjá ekki annað en að þessi ásókn í vetrarferðir til Íslands haldi áfram.

Það er í það minnsta staðan hjá ferðaskipuleggjandanum Jet2 sem rekur bæði flugfélag og ferðaskrifstofu. Fyrirtækið tilkynnti nýverið að þarnæsta vetur yrðu farnar 135 ferðir til Íslands og í þeim yrðu samtals sæti fyrir 27 þúsund farþega. Það er aukning um 24 prósent frá því sem verður á komandi vetri. Til samanburðar flugu 262 þúsund Bretar frá Keflavíkurflugvelli árið 2019.

Þotur Jet2 munu fljúga til Keflavíkurflugvallar frá nokkrum breskum borgum og ofast eru ferðirnar fáar frá hverri og einni. Í vetur geta íbúar Birmingham, Manchester, Leeds, Birmingham, Belfast, Bristol, Edinborg og Glasgow komist til Íslands beint úr heimabyggð með Jet2. Sama á við þá sem búa í nágrenni við East Midlands flugvöllinn og þarnæsta vetur bætist svo við Íslandsflug frá Newcastle.

Í flestum tilfellum geta íslenskir farþegar nýtt sér þessar ferðir líka en stundum eru þær eingöngu í boði fyrir þá sem hefja ferðalagið í Bretlandi.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …