Samfélagsmiðlar

Sindri Snær til Arctic Adventures

Sindri Snær Einarsson er nýr framkvæmdastjóri hjá Arctic Adventures.

Sindri Snær Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðsmála og vaxtar hjá Arctic Adventures, einu stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins.

Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Arctic Adventures, segir það vera mikinn feng að fá Sindra Snæ til liðs við fyrirtækið. „Sindri Snær kemur með mikilvæga reynslu og þekkingu á sviði stafrænnar þróunar og markaðssetningar sem mun hjálpa okkur við að ná markmiðum okkar um að bæta stöðugt stafræna upplifun viðskiptavina okkar, auka sölu, sjálfvirkni og styrkja ásýnd á vörumerki félagsins. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í teymið okkar,“ segir Gréta María í tilkynningu. Hún bæti við að Sindri Snær verði hluti af frábæru teymi hjá Arctic Adventures, sem hafi náð miklum árangri við að efla starfsemina og taka á móti þeim sívaxandi fjölda ferðamanna sem heimsækja Ísland.

Sindri Snær hefur víðtæka reynslu af stafrænni þróun, markaðssetningu og markaðsstörfum, meðal annars hjá Krónunni, vefstúdíóinu Frumkvæði og við þróun á vefsvæðinu Áttavitanum. Sindri Snær er með meistaragráðu í stafrænni stjórnun frá Hyper Island í Stokkhólmi. Eins er Sindri Snær með BS-gráðu í Viðskipta- og markaðsfræði frá Háskólanum á Akureyri og diplóma próf í tölvunarfræði. 

Um 200 manns starfa hjá Arctic Adventures, á Íslandi og í Vilnius, en fyrirtækið keypti nýverið tvö fyrirtæki í ferðaþjónustu sem sérhæfa sig í ferðum um Alaska og Kanada líkt og Gréta María fór yfir í samtali við Túrisa fyrr í sumar. Þau kaup eru liður í þeirri stefnu Arctic Adventure að vera leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu á norðurslóðum. 

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …