Samfélagsmiðlar

Fleiri áætlunarferðir en fyrir faraldur

Vægi Play og erlendu flugfélaganna jókst lítillega í nýliðnum september.

Að jafnaði voru farnar 69 áætlunarferðir á dag frá Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði.

Árið 2019 er reglulega notað til að meta hversu mikill batinn hefur orðið í ferðaþjónustunni eftir heimsfaraldur. Staðreyndin er þó sú að 2017 og 2018 voru metár í atvinnugreininni þegar horft er til fjölda ferðamanna. Fall Wow Air í ársbyrjun 2019 var þungt högg fyrir ferðaþjónustuna því félagið var mjög umsvifamikið í flugi til og frá Keflavíkurflugvelli.

Til marks um samdráttinn þá voru að jafnaði farnar 92 áætlunarferðir á dag frá Keflavíkurflugvelli í september árið 2018 en þær voru aðeins 67 ári síðar samkvæmt talningum Túrista. Í nýliðnum september fór meðaltalið upp í 69 brottfarir á dag sem þýðir að umferðin var um fjórðungi minni en fyrir fjórum árum síðan.

Þá stóð Icelandair undir 44 prósentum brottfara og hlutdeild Wow Air var 33 prósent. Erlendu félögin, þar með talið Primera Air sem Andri Már Ingólfsson rak frá Lettlandi og Danmörku, voru með 23 prósent af markaðnum.

Við gjaldþrot Wow Air náði Icelandair aftur yfirburðastöðu því tvær af hverjum þremur brottförum frá Keflavíkurflugvelli í september 2019 voru á vegum félagsins.

Núna hefur aftur dregið úr hlutdeildinni og var hún 58 prósent í september sem er ögn minna en mánuðina á undan. Play og erlendu flugfélögin bættu nefnilega við sig sitthvoru prósentustiginu.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …