Samfélagsmiðlar

Icelandair næstverðmætasta flugfélagið og Play meira virði hinir nýliðarnir samanlagt

Íslensku flugfélögin virðast sigla lygnan sjó miðað við norrænu keppinautana.

Það eru sjö norræn alþjóðaflugfélög skráð á hlutabréfamarkað og nú í byrjun viðskiptaviku er samanlagt virði þeirra 306 milljarðar króna. Í þessum hópi er Icelandair næstverðmætast og Play er miklu meira virði en hinir tveir nýliðarnir í hópnum.

Markaðsvirði Play er nú á mánudagsmorgni 10,7 milljarðar króna eftir að hafa lækkað um rúm sex prósent í síðustu viku. Þá fór gengi Flyr hins vegar mest niður á við eða um 7,4 prósent. Hlutabréf þessa norska félags eru því aðeins 2,6 milljarða kr. virði í dag en félagið hóf áætlunarflug í lok júní í fyrra líkt og Play.

Norse, sem byrjaði nú í sumar, er 4,6 milljarða kr. virði eftir hækkanir í síðustu viku en samanlagt eru Flyr og Norse metin á 7,2 milljarða króna.

Norwegian er aftur á móti verðmætast allra flugfélaga á Norðurlöndum því bréfin í því eru metin á 91,5 milljarð króna. Þar á eftir kemur Icelandair er bréfin í því félagi eru 77,2 milljarða virði í dag eins og sjá má á neðra grafinu.

Finnair og SAS koma þar á eftir en stjórnendur þess síðarnefnda reyna nú að fá heimild fyrir fjárhagslegri endurskipulagningu hjá bandarískum dómstólum. Takist það er ætlunin að efna til hlutafjárútboðs og þá mun virði núverandi hlutafjár rýrna um alla vega 90 til 95 prósent samkvæmt því sem fram hefur komið.

Staða Finnair er líka snúin því það félag gerir út á flug til Asíu en nú þegar rússnesk lofthelgi er lokuð þá er sú útgerð erfið. Stjórnendur finnska félagsins hafa því boðað niðurskurð sem felur m.a. í sér uppsagnir á skrifstofum félagsins.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …