Samfélagsmiðlar

Stefnir í mun tíðari flugferðir og þar með fleiri ferðamenn

Umsvifin í Íslandsflugi eftir áramót gefa vísbendingu um hversu margir ferðamenn koma til landsins fyrstu mánuði næsta árs.

Farþegar í Leifsstöð.

Þeir sem voru á leið til Íslands á fyrsta fjórðungi þessa árs gátu að jafnaði valið á milli þrjátíu ferða á dag til Keflavíkurflugvallar. Það var rétt um helmingur af framboðinu á sama tíma metárið 2018. Hlutfallslega var samdrátturinn í komum erlendra ferðamanna álíka mikill.

Framboð á flugi á fyrsta fjórðungi næsta árs gefur því ágæta mynd af því sem er í vændum eftir áramót.

Og samkvæmt talningu Túrista þá stefnir í að áætlunarferðirnar, frá Keflavíkurflugvelli, verði að jafnaði 51 á dag í janúar, febrúar og mars næstkomandi. Viðbótin frá sama tíma í ár nemur 68 prósentum en ennþá vantar um 17 prósent af því sem var árið 2018.

Miðað við þær forsendur má gera ráð fyrir að 380 til 410 þúsund erlendir farþegar fari í gegnum vopnaleit Keflavíkurflugvallar fyrstu þrjá mánuði næsta árs. En talningin sem þar fer fram er notuð til að leggja mat á fjölda túrista hér á landi. Á fyrsta fjórðungi áranna 2017 til 2019 voru þeir á bilinu 450 til 480 þúsund talsins þannig að ennþá er nokkuð í land að straumurinn verði álíka og þá var.

Sem fyrr er framboðið eftir áramót mest í flugi milli Íslands og Bretlands enda sækja Bretar í stuttar vetrarferðir til Íslands og eru fjölmennastir í hópi ferðamanna hér á landi á þessum árstíma. Fimm flugfélög munu þá fljúga reglulega hingað frá London og ferðirnar verða líka mjög tíðar frá Manchester.

Á eftir Bretunum koma Bandaríkjamenn en Icelandair og Play sitja ein að ferðunum milli Íslands og Bandaríkjanna í vetur. Það verður ekki fyrr en í lok mars sem Delta tekur upp þráðinn í flugi til Keflavíkur sem er reyndar nokkru fyrr en síðustu tvö ár þegar félagið hefur byrjað vertíðina í maí.

Meðal nýjunga á fyrsta fjórðungi næsta árs er beint flug til Dusseldorf á vegum Eurowings og eins ætlar Austrian að spreyta sig á vetrarflugi hingað frá Vínarborg. Bæði þessi flugfélag heyra undir Lufthansa Group sem hefur að undanförnu bætt í flugið til Íslands. Bæði á vegum Lufthansa en líka með ferðum Edelweiss frá Zurich. Þýskir ferðamenn hér á landi í mars sl. voru til að mynda álíka margir og í mars metárið 2018.

Flestar aðrar þjóðir eiga þó lengra í land og það á sérstaklega við Asíu enda er Kína ennþá að mestu lokað land. Og það munar um minna enda voru um sjö af hverjum 100 ferðamönnum hér á landi í ársbyrjun 2018 með kínverskt vegabréf.

Þess má geta að útbreiðsla ómíkrón afbrigðis kórónaveirunnar hafði töluverð neikvæð áhrif á ferðamannastrauminn í janúar og febrúar í ár. Hvort efnhagsástandið í Evrópu og þá sérstaklega í Bretlandi muni hafa sambærileg áhrif næstu mánuði á eftir að koma í ljós.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …