Samfélagsmiðlar

Viðbúið að markaðsvirði Play hækki umtalsvert

Nú í morgun hófst sala á 78 milljón hlutum í flugfélaginu Play og geta núverandi hluthafar bætt við sig fleiri bréfum fram til klukkan 18 á miðvikudag. Hver hlutur er seldur á 14,6 krónur sem er nokkru hærra verð en býðst á markaðnum í dag. Gengið hefur nefnilega lækkað jafnt og þétt frá því að uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung var birt þann 3. nóvember síðastliðinn eins og sjá má hér fyrir neðan.

Gengið núna er um 13 krónur á hlut.

Birgir Jónsson, forstjóri Play, hefur áður sagt að hann eigi ekki sérstaklega von á því að mikið komið inn í hlutafjárútboðinu enda sé það haldið til að gæta jafnræðis meðal hluthafa og bjóða öllum sömu kjör á viðbótarhlutafé. 

„En það væri gaman ef smærri hluthafar vildu taka þátt en það er ekki stórt atriði. Félagið er sterkara eftir þessa aukningu frá þeim stærstu og það er öllum hluthöfum til hagsbóta líka,“ útskýrði Birgir og vísaði til þess að 20 stærstu hluthafar Play hafa skuldbundið sig kaupa nýtt hlutafé fyrir 2,3 milljarða króna.

Um er að ræða 158 milljónir hluta sem seldir voru á 14,6 krónur hver og einn. Þegar þessi hlutabréf verða skráð í kauphöllina, í byrjun næsta mánaðar, má búast við að markaðsvirði Play verulega. Þannig er virði félagsins núna 9,2 milljarðar króna en það hækkar um tvo milljarða þegar nýju bréfin bætast við ef gengið verður álíka og það er núna.

Markaðsvirðið hækkar svo um einn milljarð til viðbótar og fer upp í 12 milljarða ef allir hlutirnir sem settir voru í sölu í morgun verða keyptir. Markaðsvirði Play var síðast það hátt í lok september sl. en það hefur hæst farið upp í 20 milljarða kr.

Sem fyrr segir er gengi hlutabréfanna Play nokkuð undir útboðsgenginu en fjárfestar fá rétt til að kaupa fjórðung til viðbótar, á gengingu 14,6 kr. á hlut, í byrjun þarnæsta árs.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …