Samfélagsmiðlar

Rússar streyma til Tælands

Rússar voru meðal mikilvægustu ferðamanna á Tælandi fyrir heimsfaraldur - og eru enn þrátt fyrir að árásarstríð þeirra í Úkraínu hafi lokað mörgum dyrum. Tælendingar búast við einni milljón ferðamanna frá Rússlandi á nýhöfnu ári.

Phuket

Frá Phuket-eyju

Tæland er meðal vinsælustu ferðamannalanda í Asíu og efnahagur landsins treystir mjög á tekjurnar sem ferðaþjónustan skilar. Kórónaveirufaraldurinn var gríðarlegt áfall en í júlí á síðasta ári var öllum hindrunum fyrir endurkomum ferðamanna rutt úr vegi. Fylgt hafði verið mjög strangri stefnu til að hindra útbreiðslu sjúkdómsins. 

Fyrst eftir að innrásina í Úkraínu gátu rússneskir borgarar valsað um önnur Evrópulönd sem ferðamenn, eins og ekkert hefði í skorist. Síðan var sett á flugbann, hafnbann og ýmsum áhrifamönnum og auðjöfrum synjað um vegabréfsáritanir. Evrópusambandið ákvað síðan síðsumars að gera öllum rússneskum borgurum enn erfiðara og dýrara að fá vegabréfsáritanir. Margar Evrópusambandsþjóðirnar vildu raunar hreinlega loka á Rússana en samstaða náðist ekki um það. Efnaðir Rússar láta þó ekki staðar numið þó nágrannar í Evrópu vilji ekki sjá þá. Það er hægt að fara annað.

Bangkok
Bangkok – Mynd: Unsplash

Ferðavefurinn Skift hefur fjallað um mikilvægi rússneskra ferðamanna fyrir tælenska ferðaþjónustu. Rússar hafa verið og eru enn mikilvægir fyrir tælenska ferðaþjónustu. Nú streyma Rússarnir á sólbakaðar strendur Tælands, sérstaklega til Phuket-eyjar, flýja kaldan veturinn og leiðindin sem stríðinu fylgja heima fyrir. 

Rússarnir kunna vel við sig á Tælandi. Um ein og hálf milljón rússneskra ferðamanna heimsótti Tæland árið 2019, voru í sjöunda sæti á gestalista Tælendinga. Þegar rýnt er í tölur um komur ferðamanna til Tælands á síðustu mánuður ársins 2022 sést að Rússum hefur fjölgað hlutfallslega meira en öðrum þjóðum. Í nóvember síðastliðnum komu 109 þúsund Rússar til Tælands, aðeins ferðamenn frá Malæsíu og Indlandi voru fleiri. Þetta er um 60 prósenta endurheimt rússneskra ferðamanna frá sama mánuði 2019.

Flugvél Aeroflot – Mynd: Unsplash

Rússneskir ferðamenn dvelja að jafnaði lengur en aðrir í Tælandi, oftast viku til 10 daga, en margir hinir efnameiri dvelji í þrjá mánuði, jafnvel lengur – eða þar til vorar í heimalandinu. Um fjórðungur allra rússnesku ferðamannanna kýs að dvelja á Phuket-eyju. Nærri 168 þúsund Rússar komu til eyjarinnar í nóvember og desember.

Flogið er beint frá Moskvu, Novosibirsk og Vladivostok til Bangkok, Pattaya og Phuket. Um miðjan nóvember tilkynnti Aeroflot að flogið yrði 14 sinnum í viku til Phuket.

Ferðamálayfirvöld á Tælandi gera ráð fyrir að yfir ein milljón rússneskra ferðamanna komi til landsins á þessu ári. 

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …