Samfélagsmiðlar

Draga enn meira úr flugi til Keflavíkurflugvallar

Þotur Wizz Air munu fljúga hingað frá færri borgum í sumar en það síðasta.

Áætlunarferðir Wizz Air til Íslands frá Napólí og Feneyjum heyra sögunni til líkt og Túristi greindi frá nýverið. Þetta er þó ekki eini niðurskurðurinn í Íslandsflugi ungverska flugfélagsins á komandi sumarvertíð.

Frá og með lokum marsmánaðar er nefnilega ekki reiknað með neinum ferðum til Keflavíkurflugvallar frá Luton flugvelli við London. Þetta sést í bókunarvél félagsins en ekki hafa fengist skýringar á breytingunni hjá flugfélaginu sjálfu.

Wizz Air hóf að fljúga til Íslands frá Bretlandi í apríl 2018 og þá voru á boðstólum fjórar ferðir í viku. Nokkrum dögum eftir gjaldþrot Wow air í mars 2019 boðuðu stjórnendur Wizz Air daglegt flug hingað frá bresku höfuðborginni. Veturinn fyrir heimsfaraldur var ferðunum fækkað í fimm í viku.

Samkeppni í Íslandsflugi frá London hefur lengi verið hörð enda hafa fimm flugfélög haldið úti reglulegum ferðum hingað frá fjórum flugvöllum á Lundúnarsvæðinu. Til viðbótar hefur breska ferðaskrifstofan Tui verið með eigin ferðir hingað frá London yfir vetrarmánuðina.

Umferðin hefur því verið stíf og til marks um það var flogið um 240 sinnum héðan til London í janúar eða að jafnaði 8 brottfarir á dag. Hlutdeild Wizz Air var rétt rúmlega 6 prósent í ferðum talið samkvæmt ferðagögnum Túrista.

Þrátt fyrir að Wizz Air hafi nú tekið úr sölu Íslandsflug frá þremur borgum þá eru umsvifin áfram töluverð á Keflavíkurflugvelli. Sumaráætlun félagsins gerir nefnilega ráð fyrir ferðum frá tíu borgum og þar af fimm í Póllandi.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …