Samfélagsmiðlar

Róðurinn hertur gegn grænþvotti

Unnið er að því að herða löggjöf á Evrópska efnahagssvæðinu gegn grænþvotti. Styrkja á stöðu neytenda í baráttunni fyrir því að minnka kolefnisfótspor og stuðla að sjálfbærni. Mikilvægur þáttur í því er að koma í veg fyrir villandi og rangar staðhæfingar í máli og myndum um umhverfislegt ágæti vöru og þjónustu.

Gönguslóði á ferðamannastað

Gönguslóði ferðamanna að Brúarfossi

Búist er við að Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynni fljótlega tilskipun um aðgerðir gegn grænþvotti. Fyrir Evrópuþinginu og Leiðtogaráði liggur þegar önnur tilskipun sem lýtur að því að styrkja stöðu neytenda í umhverfismálum og verja þá gagnvart röngum eða villandi upplýsingum og svikastarfsemi.

Með þessum tilskipunum um aðferðir til að bregðast við svokölluðum grænþvotti, röngum staðhæfingum og misvísandi upplýsingum um kolefnisfótspor og önnur umhverfisáhrif, vill Evrópusambandið hraða innleiðingu hringrásarhagkerfis og færast nær markmiðinu um kolefnishlutleysi. Ein meginforsendan fyrir því að neytendur geti tekið upplýstar ákvarðanir um kaup á sjálfbærum vörum og þjónustu er að það takist að draga úr grænþvotti.  

Ferðamenn við Reykjavíkurhöfn – MYND: ÓJ

Hver verða áhrifin á Íslandi og annars staðar á Evrópska svæðinu? Jú, ef tilskipunin nær fram að ganga má vænta þess að mjög verði þrengt með reglugerðum að möguleikum fyrirtækja, eins og t.d. þeirra sem starfa í ferðaþjónustu, til að hafa í frammi staðhæfingar um umhverfislegt ágæti og sjálfbærni, sem ekki er hægt að færa sönnur á með viðurkenndum aðferðum. Enn er þó mögulegt að hafa áhrif á vinnslu málsins hjá Framkvæmdastjórninni sem búist er við að leggi fram endanlega tillögu til staðfestingar á Evrópuþinginu í marsmánuði. Þegar málið fer síðan til Evrópuþingsins og Leiðtogaráðsins geta hagsmunahópar og fyrirtæki lagt fram tillögur um breytingar.  

Hópferðabílar við Geysi – MYND: ÓJ

Þessar fyrirhuguðu breytingar á löggjöf og regluverki Evrópusambandsins, sem munu hafa bein áhrif hér á Íslandi, marka tímamót. Ekki hafa verið í gildi afdráttarlaus ákvæði í lögum eða reglugerðum þar sem brugðist er við staðhæfingum sem varða umhverfi og áhrif sem vörur og þjónusta geta haft á það. Gildandi lagaákvæði hafa verið of almenn til að gagnast nógu vel í baráttunni gegn grænþvotti. Einstök aðildarríki hafa gefið út leiðbeinandi reglur en skort hefur á samræmingu þeirra til að auka áhrifamáttinn á öllu Evrópska efnahagssvæðinu.  

Væntanleg tilskipun mun ná til allra skilaboða og kynninga í máli og myndum, þar sem fullyrt er að viðkomandi vörur eða starfsemi hafi jákvæð eða engin áhrif á umhverfið, sé minna skaðleg en einhverjar aðrar vörur eða önnur sambærileg þjónusta, eða að dregið hafi úr umhverfisáhrifum og viðkomandi vörur eða þjónusta hafi batnað í umhverfislegu tilliti. Þessar auknu kröfur um að grænar fullyrðingar standist verða þó aðeins gerðar þar sem þær snerta sjálfbærni í umhverfismálum með beinum hætti – að ekki sé verið að ganga á líffræðilega fjölbreytni. 

Þingvallamynd – MYND: ÓJ
Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …