Samfélagsmiðlar

Bandarísk flugfélög vænta metfjölda farþega í vor

Þrátt fyrir skort á flugmönnum og ýmis kerfisvandræði á flugvöllum í Bandaríkjunum gera þarlend flugfélög ráð fyrir metfjölda farþega í mars og apríl.

Samtök flugrekenda í Bandaríkjunum, Airlines for America, gera ráð fyrir að 2,6 milljónir farþega fljúgi að meðaltali á degi hverjum til loka aprílmánaðar en það er fjölgun um eitt prósent frá 2019. Mars og apríl eru vinsælir ferðamánuðir vestra vegna skólaleyfa og sóknar margra í hlýindi, t.d. á Flórída og í Arizona.

Bandarísku flugfélögin gera ráð fyrir mikilli spurn eftir farmiðum en þó hafa flugáætlanir verið skornar niður um 10 prósent frá 2019, samkvæmt Airline Weekly. Nú komast einfaldlega fleiri farþegar í hvert flug: Notaðar eru fleiri stærri flugvélar með meiri flutningsgetu, fleiri sætaröðum er komið fyrir í hverja vél. Þá ætla  lággjaldaflugfélög, sem eru utan samtakanna Airlines for America, að stórauka framboð sitt á ferðum. Þetta eru félög eins og Allegiant Air og Frontier Airlines. En á sama tíma og almennum farþegum fjölgar í flugi í Bandaríkjunum þá hafa viðskiptaferðir ekki tekið við sér að sama skapi. Menn vöndust fjarfundum í faraldrinum og jafnframt er þrýst á að fyrirtæki að minnka kolefnisspor sitt. 

MYND: Unsplash/Jeffrey Clayton

Missjafnt er eftir markaðssvæðum hversu vel flugumferð frá Bandaríkjunum hefur tekið við sér. Mikil aukning er í flugi til Mexíkó, flug til Frakklands er álíka og fyrir heimsfaraldur, en töluvert færri en áður fljúga til Brasilíu, Hawaii, Japans, Kína og Ástralíu. Þá mælist 17 prósenta samdráttur í ferðum til vinsælasta áfangastaðar bandarískra ferðamanna, Kanada, miðað við árið 2019. 

Flugrekendur vestra náðu að snúa tapi í örlítinn hagnað á síðasta ári. Afkoma flugfélaganna var mun lakari en almennt í fyrirtækjarekstri vestra og skýrist það að mestu á háum vöxtum sem greiða þarf af dýrum fjárfestingum, verðhækkun á olíu og launahækkunum. Eins og gefur að skilja hefur mjög fjölgað í starfsliði bandarísku flugfélaganna eftir að kórónaveirufaraldrinum lauk eða um hátt í 100 þúsund á síðustu tveimur árum. Þá hafa flugfélögin ráðist í gríðarmiklar fjárfestingar, bæði í nýjum flugvélum og í bættri tækni til að laga þjónustu, sem oft er gagnrýnd. Flugfélögin þrýsta líka stöðugt á meiri fjárframlög stjórnvalda í að styrkja og bæta flugumferðarstjórn og í uppbyggingu innviða. 

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …