Það verður sífellt algengara í Bandaríkjunum að hótelherbergi séu ekki þrifin daglega nema að gesturinn óski sérstaklega eftir því og sé tilbúinn að greiða aukalega fyrir það, eins og Túristi hefur greint frá. Því er haldið fram að margir gestir óski þess að fá að vera í friði með sitt dót og telji sig vera að leggja umhverfinu lið með því að minnka herbergisþrifin.
Túristi leitaði til tveggja stjórnenda hótelkeðja á Íslandi og bar þetta undir þá.
Kristófer Oliversson, eigandi Center Hotels, kannast við þessa tilhneigingu vestanhafs:
„Stóru hótelkeðjurnar hafa verið að feta sín fyrstu skref með þetta. Choice Hotels bjóða upp á frían drykk á barnum í staðinn og það eru ýmsar útfærslur í gangi á þessu. Gestakannanir hafa hinsvegar sýnt að það er ekki ánægja meðal gesta að þurfa að borga sérstaklega fyrir dagleg þrif í viðbót við gistikostnað og gestaskor þessara hótela hefur lækkað.“
En Kristófer vísar þessu nýja fyrirkomulagi ekki á bug:
„Þetta er áhugavert – og ekki bara sem leið til að spara kostnað, heldur líka til þess að veita persónulegri eða einstaklingsmiðaðri þjónustu. Þarfir yngra fólks og sjálfbærnivitund spila líka inn þarna. Sumum finnst óþarfi að láta skipta um handklæði lín á meðan á dvöl stendur.“
Túristi spyr Davíð Torfa Ólafsson, forstjóra Íslandshótela, Er það framtíðin að daglegum herbergisþrifum verði hætt nema að sérstaklega sé greitt fyrir það?
„Alveg klárlega. Við sjáum flestar hótelkeðjur í heiminum bjóða núna upp á þrif á þriggja daga fresti og svo hafa sumir sett þetta í hendurnar á viðskiptavininum, þ.e. ekkert þrifið nema ef viðkomandi óskar eftir því. Með þessu er verið að reyna að sporna við hækkandi launakostnaði og jafnframt stuðlar þetta að umhverfisvernd.“